Læknablaðið - 01.04.1956, Blaðsíða 26
16
LÆKNABLAÐIÐ
kvæmdir. Kom þar vel i ljós
snyrtiinennska hans, dugnaður
og framtakssemi.
Sem læknir var hann mjög
vel látinn, glöggur að þekkja
sjúkdóma, góður og nærgæt-
inn við sjúklinga sina, lilífði
sjálfum sér liv,ergi, en gerði
allt, sem hann gat, til þess að
létta þeim byrðarnar, sem erf-
iðast áttu og glæða hjá þeim
vonir um hata og hjartari
framtíð. Yar læknisstarfið lion-
um svo eiginlegt vegna með-
fæddrar ljúfmennsku og glaðr-
ar framkomu við sjúklingana.
Okkur hekkjarhræðrunum var
hann ágætur félagi, trygglynd-
ur, glaðvær og hrókur alls
fagnaðar.
Hann var ákveðinn í skoð-
unum og Iiéll þvi fram, sem
hann taldi sannast og réttast.
Gísli var lánsmaður, átti ágæta
konu, Svanlaugu Jónsdóttur,
jn.esls á Bíldudal, sem var hon-
um góður og öruggur förunaul-
ur. Mjög gestkvæmt var á
heimili þeirra hæði hér i bæ og
á nýbýlinu, var gestrisni þeirra
góðvitd og glaðværð þess vald-
andi. Þau eignuðust 2 hörn,
Pál, sjúkrahúslækni á Akra-
nesi og Stefaníu, konu Víkings
læknis Arnórssonar.
Gísli var fremur hár vexli,
þrekvaxinn og rannnur að afli,
svipurinn lireinn og góðlegur.
Fyrir nokkrum árum fékk
Gísli læknir liðagigt og samtím-
is mb. cordis, sem varð þess
valdandi, að hann lézt svo
snögglega. Með Gísla Pálssyni
er genginn góður drengur og
mikilhæfur læknir, sem er sárt
saknað af öllum, sem þekktu
hann hezt og munu alltaf minn-
ast hans með þakklæti og virð-
ingu.
Kristján Sveinsson.
Frá
Laeknaíclagi Islands
New England Hospital í
Boston gerir ráð fyrir að veita
erlendum læknum kandidats-
stöður. Umsóknir frá islenzk-
um kandidötum sendist undir-
rituðum, sem veitir nánari
upplýsingar, fyrir 1. júlí n.k.
Stjórn og rekstur sjúkrahúsa.
1 sambandi við „Graduate
School of Business and Public
Administration", sem er deild
úr Cornell háskóla, N. Y., fer
fram sérstök kennsla (nám-
skeið) í fræðum, er lúta að
stjórn og rekstri sjúkrahúsa.
Uttendingum er gerður kost-
ur á námstyrk.
Nánari upplýsingar veitir
stjórn L.l.
Júlíus Sigurjónsson.