Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1956, Side 16

Læknablaðið - 01.04.1956, Side 16
6 L Æ K N A B L A Ð I Ð ir heilbrigðir en dæturnar sjúkdómsarfberar. 2. Sé faðir- inn veikur og konan sjúkdóms- arfberi verður helmingur drengjanna veikur og h,elm- ingur dætranna og hinn helm- ingur dætranna sjúkdómsarf- berar. 3. Séu báðir foreldrarn- ir sjúkir, verða öll börnin sjúk. 4. Sé faðirinn heilbrigður en móðirin sjúk, verða allir syn- irnir sjúkir en dæturnar leynd- ir sjúkdómsarfberar. Synirnir geta varla fengið sjúkdóminn beinl frá föðurnum. Óreglulegt ríkjandi arfgengi. Við jurta- og dýratilraunir hefur komið í ljós, að drottnun (dominans) við arfblendni þarf ekki alltaf að vera algjör. Því ófullkomnari sem drottnunin er því meira nálgast kynblend- ingurinn millistigið (milli for- eldranna). Við hina svokölluðu hvarfl- andi (fluktuerandi) drottnun getur ríkjandi sjúkdómur komið mjög misjafnlega sterkt fram hjá hinum einstöku fjöl- ákyldumeðlimum. Söinuleiðik getur sjúkdómur, sem virðist fylgja ríkjandi erfðum, hlaup- ið yfir ættlið, komið ekki frám í einhverjum einstaklingi, sem getur þó flutt sjúkdóminn yf- ir á næsta ættlið eins og á sér stað við víkjandi arfgengi. Óregluleg drottnun getur líka komið fram við það, að eitt- hvert atriði eða afl verkar til hindrunar, að sjúkdómurinn komi fram og stundum virðist þurfa fleiri samverkandi öfl til þess að láta ríkjandi sjúk- dóm koma fram. Auk orsaka, sem bundnar eru erfðastofninum þurfa stundum utanaðkomandi áhrif til þess að framkalla sjúkdóm- inn, ef tilhneiging til lians ,er fyrir hendi. Sumir ríkjandi arfgengir sjúkdómar koma ekki fram fyrr en menn eru orðnir full- orðnir eða gamlir, er það kall- að „homocron“ arfgengi, það er að segja, að sumir arfgengir sjúkdómar komi fyrir á vissu aldursskeiði, sem samt er ekki alltaf um að ræða í veruleik- anum, því að tímalengd sú, sem sjúkdómar þessir koma fram á getur oltið á tugum ára og því oft valdið truflunum og erfiðleikum, er dæma skal um arfgengi þeirra. Við marga arfgenga, með- fædda, kvilla er um vanskapn- að ræða ,eins og lithimnuglufu (coloboma iridis), dvergauga (microphthalmus), meðfædda starblindu o. fl. Sumar starfs- truflanir (funkt'ionstr.) stafa scnnilega af líffærilegum breytingum eins og litblinda o. fl. en aftur á móti er oftast við „homocron“ sjúkdóma um hrörnun í líkamsvefjunum að ræða, sem skemma og eyði-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.