Læknablaðið - 01.04.1956, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ
11
fellum hafa foreldrar eða aðr-
ir nákomnir ættingjar dáið
ungir eða fyrir þann tíma, sem
glákusjúkdómurinn kemur
venjulega fram á, svo oft getur
litið út fyrir að ekki sé um ætt-
gengi að ræða, þótt svo sé.
Hér hef ég fundið nokkrar
glákuættir, sem hægt er að
rekja blindu hjá í marga ætt-
liði, t. d. konu fædda 1742 og
liennar ættmenn til þ,essa dags
með mjög áberandi glákusjúk-
dóm. Auðvitað veit maður ekki
með vissu, að um glákusjúk-
dóm hafi verið að ræða nema
í 2—3 ætlliði, en engin ástæða
er frekar að halda, að um aðra
sjúkdóma hafi verið að ræða.
Ég læt fylgja töflu yfir 6 ætt-
liði þessarar konu frá 1742. 1
siðasla ættliðnum hefur sjúk-
dómurinn aukizt mjög, senni-
legt að þar hafi valizt sam-
an einstaklingar með tilhneig-
ingar til sjúkdómsins. Þeg-
ar ég taldi fram blindu- og
blindra-orsakir hér á landi
1940 og birti i tímariti Rauða
kross íslands 1944, kom i ljós,
að 71,1% af blindu fólki hér
var blint af glákusjúkdómi,
eða yfirgnæfandi meirihluti.
Ég hef fengið upplýsingar
um nokkra menn úr glákuætt-
um hér, sem hafa farið ungir
til Ameríku, hafa t. d. búið í
Manitoba eða vestur undir
Klettafjöllum og liafa sem
eldri menn fengið glákusjúk-
dóminn og orðið blindir, engu
síður en ættmenn þeirra hér
heima. Af því getum við ráð-
ið, að breytt veðrátta og lifn-
aðarhættir varna því eigi, að
sjúkdómurinn komi fram og
styður það kenninguna um
það, að lílt breytist genin.
Höfum við fengið þetta í arf
frá okkar norsku forfeðrum?
Hefur verið um of miklar
skyldleikagiftingar að ræða í
okkar einangraða landi? Menn
vita um arfgenga sjúkdóma, að
þeir koma mikið fram ef fólk
með sjúkdóminn eða sjúkdóm-
inn falinn í sér eignast saman
afkvæmi. Kemur þá sjúkdóm-
urinn ýmist fram eða afkvæm-
ið heldur áfram að vera sjúk-
legur arfberi.
Vil ég nú athuga nokkru
nánar þessa 1450 glákusjúkl-
inga, sem ég hef haft til atlmg-
unar og meðferðar, sérstaklega
gagnvart erfðum. Venjulega er
talið að karlar og konur fái
sjúkdóminn nokkuð jafnt,
konur eru þó víða í meirihluta.
Hjá mér er þetta öfugt, karl-
menn nær helmingi fleiri en
konur eða 954 móti 496 og er
það því mjög áberandi.
Af þessum 1450 sjúklingum
voru 15 með afleidda gláku
(glaucoma secundarium),
vegna berkla, meiðsla og irido-
cjælitis, svo til hinnar prímeru
gláku heyra þá 1435 sjúklingar.
Við athugun á aldri jjessara
sjúkl. kemur í ljós, að fram að
40 ára aldri eru aðeins 8 til-