Læknablaðið - 01.04.1956, Blaðsíða 32
22
LÆKNABLAÐIÐ
héraðslæknisstarfið í Reykja-
vík, ásamt víðtækri almennri
læknisþjónustu þar um margra
ára bil, og loks ,en ekki sízt
læknisverk hans á Farsótta- og
Sóttvarnarliúsi Reykj avíkur
háru öll vott um óvenjulega
skyldurækni, mikla þekkingu
og glögga dómgreind.
Jón Hj. Sigurðsson var mjög
geðþekkur maður. Yið þá, er
iiann þekkti lítt, var hann hæg-
látur og fámáll og virtist jal'n-
vel stundum feiminn, enda var
liann mjög yfirlætislaus. í
vinahópi var hann aftur á móti
fjörmikill og hrókur alls fagn-
aðar. Hann var vinsæll og vin-
fastur svo að af har. Hann var
hreinn og hispurslaus í fram-
komu, en sagði þó eigi hug
sinn allan. Hann ofmelnaðist
aldr.ei af mikilli þekkingu
sinni, heldur fremur hið gagn-
stæða, eins og liann vildi leggja
áherzlu á það, að alltaf mætti
betur gera. Hann var ger-
sneyddur allri hégómagirni og
henti oft gaman að tildri. Hann
var mikill unnandi sigildrar
hljómlistar og bar á hana gott
skynbragð. Hann var mikið
barn náttúrunnar og naut ís-
lenzks sveitalífs, þá er hann
mátti því við koma. Laxveiði-
maður var liann mikill, enda
vel kunnur flestum beztu
veiðiám landsins.
Frá því að Háskóli íslands
var stofnaður árið 1911 og
fram til ársins 1948, gegndi
prófessor Jón kennslustörfum
við læknadeildina, eða alls í
37 ár. Flestir núlifandi starf-
andi læknar landsins eru nem-
cndur hans. Hann er því ,einn
þeirra manna, sem átt hefur
ríkastan þátt í því að móta ís-
lenzka læknastétt, eins og hún
er í dag. Það er ef til vill djarft
af samtíðinni að ætla sér að
fella um það dóm, hvernig
Jjetta hafi tekizt. Ivomandi
kynslóðir munu hér einar fær-
ar um að dæma. En ég er ekki
í vafa um, hvert svar þeirra
verður.
Með Jóni Hj. Sigurðssyni er
lil moldar genginn einn af for-
vígismönnum íslenzku þjóðar-
innar á sviði heilbrigðismála
frá upphafi.
Blessuð sé minning hans.
Frekari æviatriði Jóns Ilj.
Sigurðssonar má sjá í „Lækn-
ar á lslandi“, Reykjavík 1944,
hls. 175.
Sigurður Sigurðsson.