Læknablaðið - 01.09.1957, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
69
hægra megin. Eftir nokkurn
tíma versnaði höfuðverkurinn,
sömuleiðis versnaði sjón á báð-
um augum, einkum hægra auga,
svo að sjúkl. er flutt yfir í lyf-
læknisdeild Landspítalans til
athugunar vegna tumor intra-
cranialis. Rannsóknir gerðar í
lyflæknisdeildinni sýndu: Rtg.
mynd af sinusum, cor og pulm.
eðlil. Tensio 140/85, sökk 12,
Hb. 98%, rauð blk. 4.04, hv.
blk. 4850. Diff.: 6 staf., 48
segm., 1 eos., 45 lymf. Blóðurea
30 mg%. Kalium 5.5 m Ec/1.
Natrium 151, cholest. 279
mg%, calcium í blóði 8 mg%.
Mc Leanspróf 1800. Þvagr.
APS-K Neurologisk skoðun
negativ.
Gagnvart augnsjúkdómum í
ættinni upplýsir sjúkl.: Móður-
amma blind á efri árum, sömu-
leiðis móðurafi lengi blindur.
Um orsakir er ekki vitað. Ná-
skyld kona í Ameríku var ný-
lega opereruð á öðru auga vegna
æðaæxlis í auganu, ekki ósenni-
legt að um angiomatosis hafi
verið að ræða.
Augnarannsókn, sjón á hægra
auga: Sjúkl. getur talið fingur
fyrir framan augað, vinstra
auga 5/6—5/5 án gleraugna.
Augnlok eðlileg. Að utan er
augað eðlilegt að sjá, augn-
hreyfingar eðlilegar. Ljósop
kringlótt, jöfn, svara ljósi og
konvergens. Lithimna og auga-
steinn eðlil. Fundus, hægra
auga: Dálítið grugg í gler-
vökva, papillutakmörk eðlileg.
Slagæðin og bláæðin, sem liggja
tempoi’alt upp, eru mjög mikið
útvíkkaðar (3—4 víðari en
venjul.) og hlykkjóttar, sér-
staklega bláæðin og er svo allt
út í útjaðar sjónhimnunnar. Á
einstaka stað sjást eins og
þrengsli í æðunum. Líta þær út
eins og perluband, sést það
meira í slagæðinni en í bláæð-
inni. Aðrar æðar augnbotnsins
eru heldur meira útvíkkaðar en
venjul. er. Ofan við papilluna
sjást gulhvítar, fremur fíngerð-
ar, grysjaðar skellur, exsudöt,
og í maculasvæðinu sést mjög
áberandi, gulhvítt exsudat,
stjörnumynd. Meðfram hinum
útvíkkuðu æðum temporalt og
einkum úti í periferiunni, sést,
að æðarnar eru umluktar hvít-
um vef, sem ber nokkru hærra
en annað yfirborð augnbotns-
ins. I þessum hvíta vef sést í út-
jaðri sjónhimnunnar, að bláæð-
in og slagæðin með 2—3 grein-
um sameinast í grárauðum,
hnútóttum hnykli á stærð við
1—2 papillubreiddir, talsvert
upphækkaður, greinist bezt með
6 dioptr. við augnspeglun. Ein-
stöku fíngerð blæðing sést,
einkum meðfram neðstu slag-
æðargreininni. Æðarnar hálf-
hverfa á einstöku stað í þessu
exsudati. — Að neðan og nasalt
er augnbotninn eðlilegur.
Á vinstra auga sjást svipað-
ar breytingar og á hægra auga,
en þó ekki eins áberandi. Æðai-