Læknablaðið - 01.09.1957, Blaðsíða 32
84
LÆKN ABLAÐIÐ
nefndar þeirrar, er kosin var á
síðasta aðalfundi L. I. til að at-
huga ýmis atriði í sambandi við
þagnarskylduna, beinir aðal-
fundur L. 1. því til stjórnar fé-
lagsins og stjórnar L. R. að hlut-
ast til um endurskoðun á eyðu-
blöðum, sem læknum er gert að
útfylla vegna sjúkrasamlaga,
Tryggingastofnunar ríkisins og
annarra hliðstæðra aðila.“
Framsögumaður samninga-
nefndar praktiserandi lækna
(Bj. Snæbj.) lagði fram eftir-
farandi tillögu, sem var sam-
þykkt: „Fundurinn felur stjórn
L. I. að skipa 5 manna nefnd
úr hópi sjúJcrasamlagslækna frá
stöðum, þar sem a.m.k. 2 lækn-
ar eru starfandi. 1 nefndinni
skal vera 1 embættislæknir rík-
isins, 1 embættislæknir bæjar-
félags, 1 sérfræðingur, sem ekki
er embættislæknir og 2 almenn-
ir læknar. Nefndin skal gera til-
lögur um réttindi (þ. á m. launa-
greiðslutilhögun) og skyldur
sjúkrasamlagslækna innbyrðis
og gagnvart sjúkrasamlög-
um, eftir að hafa kynnt
sér hvernig slíkum málum
er háttað í nágrannalöndum
okkar. — Skal hún hafa
lokið starfi og skilað nefndar-
áliti a.m.k. mánuði fyrir næsta
aðalfund og formaður læknafé-
lagsins sent það viðkomandi
sj úkrasamlagslæknum."
Kosið var í samninganefnd
praktiserandi lækna og urðu
þessir læknar fyrir valinu:
Bjarni Snæbjörnsson, Jón Gunn-
laugsson, Páll Gíslason og Guð-
jón Klemenzson.
Formaður nefndar til úrhóta
á skorti rúma fyrir geðveika,
fávita og flogaveika, vísaði til
skýrslu fluttrar á læknaþingi
nú, en bar þar næst fram eftir-
farandi tillögu, sem nokkrar um-
ræður urðu um: „Aðalfundur
L. 1. haldinn í Reykjavík í júní
1957, beinir þeim eindregnu til-
mælum til hæstvirts heilbrigðis-
málaráðherra, að hann geri nú
þegar raunhæfar ráðstafnir til
að bæta úr þeim alvarlega
skorti, sem hér er á sjúkrarúm-
um fyrir fávita, geðveika og
flogaveika.
Jafnframt áréttar fundurinn
það, sem nefnd, er kosin var á
síðasta aðalfundi læknafélagsins
flutti ráðherra um þetta efni
í janúar síðastliðnum, og i bréfi,
dagsettu hinn 28. febrúar 1957.“
Var tillagan samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum.
Júlíus Sigurjónsson las upp
bréf frá International Union of
Associations of Doctor Motor-
vsts, þar sem boðin var þátttaka
í félagsskapnum.
Skýrði hann tilgang og starf-
semi samtakanna og bað um ein-
hverja afstöðu fundarmanna.
Samþykkt var að vísa til stjórn-
arinnar athugun á því, hvort
heppilegt væri að stofna slíkan
félagsskap hér á landi.
Ræddur var sá alvarlegi
skorfur hjúkrunarkvenna, er