Læknablaðið - 01.09.1957, Qupperneq 24
80
LÆKN ABLAÐIÐ
ingar verður þó fyrst vart eftir
3 ár.
Aukningin nemur því á ári
aðeins 6—7 hjúkrunarkonum
fi'á því, sem verið hefur, og
það mun vera óhagganleg stað-
reynd, að 1/3—% þessara ungu
stúlkna gifta sig um það leyti
eða skömmu eftir að þær út-
skrifast.
Hjúkrunarkvennaskólinn hef-
ur hingað til ekki getað annað
þörfinni, miðað við þann sjúkra-
rúmafjölda, sem fyrir er í land-
inu, og fjölgun hjúkrunar-
kvenna vegna hins nýja skóla
er á engan hátt sambærileg við
þá aukningu á sjúkrarúmum,
sem væntanleg er á næstu ár-
um og þegar er í undirbúningi.
Ef bæta á ástandið í þessum
málum frá því sem nú er, og
jafnvel koma í veg fyrir að það
versni, þarf að halda áfram
byggingu Hjúkrunarkvenna-
skólans sleitulaust, unz hún er
fullbyggð. Fengjust þá um 30
heimavistarpláss í viðbót við
þau, sem nú eru, og færi vel,
ef það nægði til að halda í horf-
inu, þegar sjúkrahúsmálin eru
komin í viðunandi horf.
En frekari aðgerða er þörf,
og treystum við því, að vænt-
anleg þingskipuð nefnd, sem
mun fjalla um þetta mál, finni
leiðir, sem að fullu gagni koma.
Reykjavík, 28. febr. 1957.
Virðingarfyllst
Jón Sigurðsson
(sign).
Öskar Þ. Þórðarson
(sign).
Heilbrigðismálaráðherra
herra Hannibal Valdimarsson,
Reykjavík.
Alllangar umræður spunnust
um hjúkrunarkvennaskortinn og
sjúkrahúsmál. Tóku þátt í þeim
Guðmundur Karl Pétursson,
Páll Kolka, Helgi Tómasson og
Sigurður Sigurðsson. Að lokn-
um umi-æðum var samþykkt að
taka hjúkrunarskólamálið inn á
dagskrá aðalfundar L. I.
Að kvöldi þ. 19/6. flutti Dr.
R. D. Lawrence erindi um dia-
betes og nýjungar í diabetes-
meðferð.
Til máls tóku: Valtýr Alberts-
son, dr. med. Björn Sigurðsson,
dr. med. Óskar Þórðarson, próf.
dr. med. Sigurður Samúelsson
og próf. R. Schubert frá Tú-
bingen, en dr. Lawrence svar-
aði fyrirspurnum.
Fundur var aftur settur 20.
júní kl. 16,30.
Fyrsta mál var skýrsla hús-
byggingarnefndar, er Bjarni
Bjarnason flutti. Sýndi hann
uppdrátt af domus medica og
líkan er sýndi staðsetningu þess.
Taldi hann árangur af starfi
nefndarinnar minni en við var
búizt, enda ýmsir erfiðleikar
orðið á vegi hennar. Rakti þar
næst forsendur fyrir bygging-
unni og skýrði nauðsyn hennar.
Skýrði frá eftirsókn ýmissa að-
ila að byggja neðsta hluta húss-