Læknablaðið - 01.09.1957, Page 31
LÆKN ABLAÐIÐ
83
Sigurjónssyni og Guðmundi K.
Péturssyni:
„Aðalfundur L. I. 1957 veitir
stjórn félagsins heimild til þess
að verja allt að kr. 3000,00 til
skrifstofuhalds á næsta reikn-
ingsári, 1957—1958.“
Þá var samþykkt samhljóða
tillaga frá Arinbirni Kolbeins-
syni og Bergsveini Ólafssyni,
„.... að árgjald L. I. verði
hækkað úr kr. 300.00 í kr. 400.00
fyrir næsta reikningsár, 1957—
1958“.
Hinn 21. júní var fundi hald-
ið áfram á sama stað, og settur
kl. 9,45.
Formaður skýrði frá gjöf, að
upphæð kr. 10.000, er ónefndur
maður afhenti honum, sem heiS-
ursgjöf til L. /., sem vott virð-
ingar og velvilja í garð íslenzkra
lækna. Bað fundarmenn bera
fram tillögu um það, hvernig fé
þessu væri bezt varið og varð-
veitt, en gefandinn hafði sett
það skilyrði, að núv. formaður,
Valtýr Albertsson, væri sam-
þykkur ráðstöfun fjárins. Eftir
nokkrar umræður var eftirfai'-
andi tillaga borin fram af Valtý
Albertssyni og Bergsveini Ól-
afssyni „Aðalfundur L. L, 19.—
22. júní 1957, þakkar ónefndum
gefanda 10.000 kr. gjöf, og þá
velvild og rausn í garð lækna,
er hún sýnir. Féð skal ávaxtað
sem tryggilegast og síðan varið
til híbýlaprýði í væntanlegu
læknahúsi í Reykjavík (Domus
medica).“ Tillagan var einróma
samþykkt.
Næst var tekin fyrir skipun
fastanefnda......Bar formað-
ur fram þá tillögu, að húsbygg-
ingarnefnd sæti óbreytt áfram,
og var það samþykkt einróma.
Nefnd til varðveizlu þagnar-
skyldu skilaði áliti. (Sbr. fram-
sögu Júl. Sigurj. á læknaþingi
þ. 20/6.). Tillögur nefndarinn-
ar voru í stuttu máli þessar:
1) Vottorð verði almennt gerð
einfaldari.
2) Læknar einir fjalli um vott-
orðin (en ekki leikmenn).
3) Beiðni um sjúkrahúsvist
fari beint til lækna sjúkra-
hússins (en ekki á almenna
skrifstofu spítalanna).
4) Þar sem ekki eru trúnaðar-
læknar, verði aðeins gefnar
upplýsingar almenns eðlis,
en ekki sjúkdómsgreining
né greinargerð.
5) Á fylgiblöðum til rann-
sóknastofnana sé ekki getið
nafns sjúldings (nóg að
skrá fangamark og til-
greina kyn, fæðingardag og
ár, auk sjúkraskrárnúm-
ers).
Auk þess var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga frá nefndar-
mönnum (Guðm. K. Péturssyni,
Ólafi Geirssyni og Júlíusi Sig-
urjónssyni): „Með skírskotun
til samþykktar W.M.A. á árs-
þingi 1954 (sbr. Læknabl. 1. tbl.
39. árg.) um þagnarskyldu
lækna, og með tilvísun til álits