Læknablaðið - 01.09.1957, Síða 33
LÆKNABLAÐIÐ
85
verða mun enn tilfinnanlegri, er
til starfa taka sjúkrahús þau,
sem nú eru í smíðum. Um það
mál gerði fundurinn eftirfar-
andi samþykkt: „Aðalfundur L.
1., haldinn í Reykjavík dagana
19.—22. júní 1957, leggur meg-
ináherzlu á, að lokið verði hið
allra bráðasta byggingu Hjúkr-
unarskóla Islands. Eins og öll-
um er kunnugt, sem eitthvað
þekkja til þessarra mála, er nú
þegar hinn mesti skortur á
hjúkrunarliði í landinu, og horf-
ir til fullkominna vandræða,
þegar sjúkrahús þau, sem nú
eru í byggingu, verða tekin í
notkun. En stækkun sú, sem orð-
in er á hjúkrunarkvennaskólan-
um, fullnægir ekki einu sinni
núverandi þörfum. Enda þótt
lokið verði tafarlaust fyrirhug-
aðri byggingu hjúkrunarskól-
ans, telur fundurinn frekari að-
gerða þörf í þessum málum, og
kæmi þar meðal annars til
greina stofnun annars eða ann-
arra hjúkrunarskóla."
F ormaðu r samninganefndar
héraðslækna skýrði frá viðræð-
um við Tryggingastofnun ríkis-
ins um taxtamál o. fl., og sagði
frá nokkrum breytingum, sem
tillögur voru gerðar um, þar á
meðal stytting dagvinnutíma og
aukagreiðslu sjúklinga til lækna
á helgum dögum og um nætur.
Talaði um gagnrýni Trygginga-
stofnunar á reikningsfærslu
héraðslækna. Las hann upp bréf
frá Tr.st., þar sem óskað er, að
mál þetta verði lagt fyrir aðal-
fund L. I.
Samninganefnd lagði til, að
skipuð yrði nefnd tveggja hér-
aðslælcna, til þess að vinna að
lausn þessa máls í samráði við
Tryggingastofnun ríkisins. Til-
lagan var samþykkt samhljóða,
og Ólafur Björnsson og Torfi
Bjarnason kosnir í nefndina.
Kosin var þar næst föst samn-
inganefnd héraðslækna, og end-
urkosnir þeir Ragnar Ásgeirs-
son, Eggert Einarsson og Bragi
Ólafsson.
Fulltrúi Læknafélags Vest-
fjarða flutti skýrslu frá aðal-
fundi félagsins þetta ár, og las
ályktanir fundarins um athuga-
semdir Tryggingastofnunar við
reikningsútfærzlu héraðslækna.
Formaður nefndar um bætt
samstraf almennra lækna, sér-
fræðinga og spítalalækna, gaf
skýrslu um störf nefndarinnar,
og las upp eftirfarandi nefndar-
álit: Nefndin telur æskilegt, að
heimilislæknar, sem senda sjúk-
linga til sérfræðings, láti fylgja
þeim greinargerð, svo sem um
gang sjúkdómsins, ósk um sér-
stakar rannsóknir eða því um
líkt, og viðkomandi sérfræðing-
ur sendi skriflega niðurstöðu af
rannsóknum sínum og tillögur
um meðferð.
Var álit þetta einróma sam-
þykkt. Bergsveinn Ólafsson ósk-
aði eftir því, að nefndin léti
birta þessa samþykkt í Lækna-
blaðinu.