Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 28.12.1958, Qupperneq 18

Læknablaðið - 28.12.1958, Qupperneq 18
138 LÆKNABLAÐIÐ að V. J. telur sig „valinn menntamann“. Það er aðals- merki nútíma-menntamanna að ástunda kurteisi. og liáttvísi i ræðu og riti, einblína ekki á gall- ana, lieldur bcnda á leiðir til úrbóta, ritsmíð nútímamennta- manns er full alúðar og góð- vildar, en gjörsnevdd illkvittni, þar eru gífuryrði og hrakvrði eklci notuð nema í sambandi við harðvítugar stj órnmáladeilur. Samþj öppuð gíf uryrði og hrakyrði af því tagi, sem áður eru nefnd, missa ætíð marks. Þau lýsa ekki að neinu gagni þeim mönnum eða málefnum, sem um er rætt, heldur bera þau vitni um innræti þess manns, sem þau notar, en auk þess eru þau aðeins gómsæt illgjörnum og öfundssjúkum lesendum. Sá, sem notar slíkt orðaval í ritsmíð 1 Læknablaði, gerir sjálfan sig sannarlega að „menntamanns- viðundri“ á nútíma mælikvarða. Næstum því mætti nota orð V. J. sjálfs til þess að lýsa slíkri rit- mennsku og segja, að hún líkt- ist mest að . . . „ösla á forugum skóm inn í vistarverur óviðkom- andi fólks og láta vaða ekki ein- ungis á öll gólf heldur upp um alla veggi. Svo ósamboðinn sem slíkur ódámsháttur er mennta- mönnum vfirleitt, sæmir hann, eins og annar suhhuskapur, læknum sínu verst“, og land- lækni þó allra sízt. VII. Það er siður V. J., að skopa langt skeið, áður en hann kemst að aðalefninu og hef ja ritsmíðar sínar, einkum árásargreinar, með alþýðlegri frásögn af ein- hverjum athurðum eða persón- um. Grein sína í Læknablaðinu 39. árg., 8.—9. thl. byrjar hann á smáþætti um tvo þekkta menn liðinnar kynslóðar. Annar er látinn vera fulltrúi tæknilegrar snilli og andlegrar fáfræði. Það er Thorvaldsen. Hinn er fulltrúi hinnar gömlu klassísku mennt- unar og hroka 19. aldarinnar, sem V. J. her mesta lotningu fyrir. Þar verður Oehlenschlág- er fyrir valinu. Thorvaldsen er lýst sem algeru fifli, enda seg- ist V. J. hafa lært það strax í menntaskóla í kennslustund um „fornmenningu Grikkja, trúar- hrögð þeirra, hókmenntir og listir“, að Thorvaldsen hafi ekkí getað skrifað skammlausan þvottakonu-reikning. Til frek- ari sönnunar kemur V. J. með sögu, sem hann segisl hafa num- ið af Steingrími Thorsteinson fyrir um það hil 45 árum. Sam- kvæmt sögu þessari á Oehlens- chláger að liafa sagt um Tlior- valdsen, að „hann vissi ekkert, skildi ekkert, og allra sizt gat hann nokkuð sagl“. Þessi setn- ing lýsir Oehlenschláger miklu meira en Tliorvaldsen, og ef rétt er frá greint, þá sýnir hún að Oehlenschláger hefir verið furðulikur því, sem V. .1. er nú,

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.