Læknablaðið - 28.12.1958, Síða 27
LÆKNABLAÐIÐ
143
hj úkrunarkvennaskort. Ekkert
svar hefur borizt frá ráðherra.
Landlækni var send samþykkt
aðalfundarins um orlof héraðs-
lækna. Hafa síðan spunnizt
nokkur bréfaskipti við land-
lækni út af því máli. Síðar var
landlækni ritað bréf og send
ýtarleg samþykkt Læknafélags
Miðvesturlands um málið.
Stjórnin átti loks tal við land-
lækni um orlofsmálið seint í
júlí. Taldi hann að sem stæði
liefðu þeir, sem óskað hefðu eft-
ir staðgengli, fengið hann.
Eftir skýrslu formanns gerði
gjaldkeri grein fyrir f járreiðum
félagsins. Árgjald fyrir hvern
gjaldskyldan félaga til L.I. hefði
verið hækkað á árinu úr 300
kr. upp í 400 kr. Hefðu öll að-
ildarfélög gert full skil, nema
Læknafél. Vestf jarða og Lækna-
fél. Suðurlands. Er gjaldkeri
liafði lesið upp endurskoðaða
reikninga félagsins, voru þeir
bornir undir atkvæði og sam-
þvkktir í einu liljóði.
Þá flutti Bergsveinn Ölafsson
skýrslu um Ekknasjóð. Reikn-
ingi sjóðsins fylgdi sú athuga-
semd, að ekki hefði borizt fram-
lag L.í. Gjaldkeri félagsins gaf
þá skýringu, að tillög aðildar-
félaga utan Reykjavíkur hefðu
innheimtzt svo seint, að ekki
hafi verið tiltök að greiða þetta
framlag, áður en gengið var frá
reikningum. Varðandi vanskil
svæðisfélags Vestfjarða lét hann
þess getið, að af samanhurði fé-
lagsskrár og tillags virtist ein-
sætt, að af liverjum félagsmanni
hefðu verið innheimtar kr. 300
í stað kr. 400.
Jón Sigurðsson vakti máls á
bágum liag Ekknasjóðs, og
hvort ekki fyndust leiðir til auk-
innar fjáröflunar. Bergsveinn
Ölafsson vakti af því tilefni at-
liygli á minningarspj öldum
sjóðsins. Voru menn á einu máli
um nauðsyn þess, að þeim yrði
meiri gaumur gefinn en verið
hefði.
Rædd var tillaga frá stjórn
L.í. um hækkun árgjalds félags-
manna, sem ekki greiða til L.R.
(er þegar hafði liækkað sitt ár-
gjald), vegna halla á útgáfu
Læknablaðsins. Samþykkt var
að liækka árstillagið upp í 500
kr. fvrir næsta reikningsár.
Þessu næst voru rædd ýmis
mál fram eftir kvöldi.
Formaður drap á tilhögun þá,
sem verið liefur á úthlutun bif-
reiða til lækna, sem sé, að stjórn
L.I. mæli með umsóknum og
komi þeim á framfæri. Guð-
mundur K. Pétursson lét í ljós
þó skoðun, að héraðslæknar
hefðu meiri þörf á fyrirgreiðslu
L.í. en Reykjavíkurlæknar við
útvegun bifreiðalevfa. Formað-
ur L.R. taldi, að liéraðslæknar
hefðu sízt borið skarðan hlut
frá horði fyrir Reykjavíkur-
læknum við úthlutun bifreiða.
Engar óskir voru hornar fram
um breytingu á fyrrgreindri til-
högun.