Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 28.12.1958, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 28.12.1958, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 155 er hann glataður. Hin eina um- talsverða hætta af þjóðnýtingu lækningastarfseminnar á vegum ríkisvalds er sú, ef fjárhagsleg og pólitísk sjónarmið færu að þykja svo mikilvæg, að ástæða þætti til að hagga verulega við umræddri grundvallarreglu. Sá möguleiki er fjarri í þessu landi, en vitni höfum við verið að fyr- irbrigðinu annars staðar og þá þar, sem búið liefur verið við einræðisstj órnarfar. Eftirmáli þýðanda. Til er, að það gerist á skrif- stofu landlæknis, sem sennilega á sér fáar hliðstæður á öðrum samhærilegum stjórnarskrif- stofum, a.m.k. hér á landi. Með fram kann þetta að eiga rætur að rekja til þess, að stétt lækna er um sumt frábrugðin öðrum stéttum, og á þetta ekki hvað sizt við um afstöðu hennar til sjálfrar sín. Til dæmis skal nefnt það, sem bar til á greindri skrifstofu nú fvrir fáum dög- um. Lækni einn bar þar að garði, og segir sá frá því, að liann hafi lesið í The Lancet, virðulegasta læknatímariti Bret- lands, nema víðar sé,í hefti, sem kom út rétt fyrir jólin (6. des- ember), ramma ádeilugrein á læknastéttina eftir merkan lækni, forseta einnar liöfuð- deildar Brezka læknafélagsins, og sé greinin reyndar ávarp lians úr forsetastóli á þingi deildarinnar síðastliðið sumar. í ávarpinu, sem fengið sé heið- urssæti í ritinu og birt athuga- semdalaust, sé læknum óspart og óþvegið sagt til syndanna, bæði almennum læknum og þó fremur sérfræðingum, en ekki sízt læknum, sem hafa með liöndum að vasast í stjórnsýslu varðandi heilbrigðismál. Pistill- inn endi á því, að það sé a.m.k. talið íhugunarefni, hvort læknis- fræðin, eins og liún er hag- nýtt, sé mannkvninu, þegar öll kurl komi til grafar, fremur til blessunar en bölvunar. Fannst gestinum nokkuð til um kenn- inguna, og vildi liann, að land- læknir þýddi greinina til birting- ar í Læknablaðinu. Landlæknir lét ekki dekstra sig að líta vfir greinina. Að lestrinum loknum stakk hann niður penna og hað leyfis höfundar að mega þýða ávarp lians og birta það. Var hvort tveggja ljúflega veitt, og var höfundur svo litillátur að geta þess, að liann teldi sér til- mælin til upphefðar. Er Lækna- blaðinu nú send þýðingin með þessum fáu eftirmálsorðum. Þýðandi liefur gert leik að því að glettast við prestvígða mál- vini sína með því að segja þeim frá inntaki þessarar læknahug- vekju og inna þá jafnframt eft- ir, hvort þeim væri kunnugt, að það tíðkaðist mjög á erlendum sýnódum og öðrum prestaþing- um, að stétt presta væri úr for- setastóli lesinn ámóta lestur, eða livort þeir Iiefðu rekizt á sam- svarandi stéttargagnrýni i er- lendum kirkjuritum, Eða hvað

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.