Læknablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
147
þing í hematology, sem lialdið
var í Róm, og flutti þar fyrir-
lestur. Síðustu árin var hann
fulltrúi háskóla síns á lækna-
þingum, sem haldin voru á
tveggja mánaða fresti, en þar
voru mættir fulltrúar frá 13
háskólum í Ameríku.
Af þessu verður séð, hversu
mjög miklu Úlfar læknir hefur
afrekað á stuttri ævi og hversu
oft vinnudagur lians hefur orð-
ið úr hófi langur, og er andlát
hans har að, var hann að
skrifa grein um nýtt lvf gegn
hvíthlæði.
Ég vil nú um leið og ég læt
lokið þessari stuttu lýsingu á
starfi hans í Bandaríkjunum
tilfæra hér fáein orð úr eftir-
mælum prófessors dr. Ralph
Jones, sem er æðsti maður
læknaháskólans í Miami. Hann
segir: „His absence \vill be
sorely felt hy his students, his
friends and colleagues here
and elsewhere, by the institu-
tions he served and by the
scientific community to which
he contributed.“
Fámenn og fátæk þjóð má
bíta í það súra eplið að geta
ekki veitt viðunandi starfs-
skilyrði öllum sínum bezt
menntu sonum. Þetta er sorg-
arsaga, en á samt einn ljós-
geisla, að fáir eru hetri full-
trúar lítillar þjóðar en gáfaðir
og vel menntir menn, sem með
eigin verðleikum ryðja sér
braut meðal framandi þjóða til
mestu virðingarsæta; einn
þeirra var Úlfar læknir.
Við læknar erum vanir því
að þurfa að kveðja marga
starfsbræður okkar á miðjum
aldri eða yngri, og alltaf er
það jafnsárt, en um leið minn-
umst við þess, að lífsstarf það,
sem við höfum valið okkur, er
fórnarstarf, sem helzt mætti
líkja við starf sjómannsins,
sem leggur út frá brimströnd.
Úlfar læknir kvæntist árið
1942 Guðnýju Ámundadótlur,
Árnasonar, kaupmanns i
Reykjavík, og konu hans,
Stefaníu Gisladóttur, glæsilegri
og góðri konu. Þau eignuðust
þrjú börn, sem öll eru á lífi:
Jakob 19 ára, sem nú tekur
upp merki föður síns og hóf
nám við læknadeild háskólans
hér í haust, og Stefaniu og Ást-
ríði 13 ára, sem eru við nám
við Kvennaskólann í Reykja-
vík.
Ég vil votta Guðnýju, börn-
um hennar og öðrum ástvin-
um Úlfars heitins, innilega
samúð.
Úlfar læknir var glæsilegur
fulltrúi íslenzkra lækna meðal
stórþjóðar og okkur, sem
þekktum hann, hugþekkur og
kær starfsbróðir, sem aldrei
gleymist.
Jón Gunnlangsson.