Læknablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ
193
og nú frá alþjóðasamtökum
lækna, sem áhuga hafa á sögu
læknisfræðinnar. I bréfi þessu
í'ara samtökin fram á fjárstyrk
til að koma upp eins konar al-
þjóða-miðstöð lækna, er skyldi
heita Pavillion Hippocratic og
byggjast á eynni Kos. Var far-
ið fram á 10 drökmu framlag
(jafnvirði 15 kr. ísl.) fyrir
hvern félaga L. 1. í eitt skipti
fyrir öll. Var stjórn L. 1. falið
að afla sér upplýsinga um fé-
lagssamtök þessi og, ef sann-
verðug reyndust, að greiða þá
tilskilda upphæð úr sjóði fé-
lagsins.
VIII.
Skýrslugerð héraðslækna.
Nokkrar umræður urðu um
þetta mál, en engin samþykkt
gerð.
IX.
Bréf L. R. Formaður las bréf
þetta að nýju, en á það liefur
verið minnzt nokkuð hér að
framan. I tilefni bréfsins bar
stjórnin fram eftirfarandi á-
lyktun, og var hún samþykkt
einróma:
„I tilefni af bréfi stjórnar L.
R., dags. 12/8 1962, ályktar að-
alfundur L. I. eftirfarandi:
1. Varðandi taxtamál skal þess
getið, að samninganefnd
liéraðslækna stendur nú í
sanmingum við T. R. um
greiðslur fyrir læknisstörf.
Er að því stefnt, að um tvo
taxta verði að ræða, sem
gildi um allt land, annan
fyrir sérfræðinga, en liinn
fyrir almenn læknisstörf.
Telur fundurinn æskilegt,
að gjaldskrárnefnd L. R.
fái tækifæri til þess að fylgj-
ast með störfum sanminga-
nefndar héraðslækna.
2. Varðandi bílakaup telur
fundurinn eðlilegt, að lækn-
ar njóti nokkurra hlunn-
inda, þar sem slík tæki eru
nauðsynleg starfi þeirra.
Treystir fundurinn því, að
L. R. hafi forystu í þessu
máli, sem hingað til.
3. Um hóptryggingu lækna
getur fundurinn ekki tekið
neina afstöðu að svo komnu
máli.
4. Fundurinn telur nauðsyn-
legt, að efla beri samvinnu
við erlend læknafélög og þá
sérstaklega á Norðurlönd-
um.
5. -6. Endurskoðun á lögum L. 1.
og þjónustuskylda kandí-
data í héraði eru á dagskrá
fundarins.
7.-8. Um hjúkrunar- og sjúkra-
lnismál vísar fundurinn til
fyrri ályktana L. I. og telur
sjálfsagt að halda svo þýð-
ingarmiklum málum vak-
andi, jafnframt vísast til er-
indis Ólafs Björnssonar hér-
aðslæknis um sjúki'ahús-
mál, sem lesið var á fundin-
um og birtast mun í næsta
hefti Læknablaðsins.