Fréttatíminn - 05.08.2011, Side 2
Vel á þriðja hundrað viðburða verður
á þessu ári í tengslum við þátttöku
Íslands í Bókasýningunni í Frank-
furt sem fram fer í október. Þar á
meðal munu sjö af helstu söfnum
Frankfurt helga sig íslenskum við-
fangsefnum í haust, íslenskir tón-
listarmenn munu halda tónleika
í borginni samhliða sýningunni,
Íslenski dansflokkurinn sýnir og ís-
lenskar kvikmyndir verða í boði.
Þetta er meðal þess sem fram
kom í Þjóðmenningarhúsinu í gær
á blaðamannafundi Sögueyjunnar
Íslands, eins og verkefnið kallast,
en Ísland er heiðursgestur Bókasýn-
ingarinnar í Frankfurt sem stendur í
fimm daga – 12. til 16. október.
Í kynningu Halldórs Guðmunds-
sonar, verkefnastjóra Sögueyjunnar,
kom fram að undirbúningur fyrir
sýninguna hefði staðið í þrjú ár.
Þrjátíu og fimm íslenskir höfund-
ar mæta til leiks á bókasýninguna
í haust en Halldór benti á að miklu
fleiri hefðu farið utan á vegum verk-
efnisins því bókakynningin færi
fram allt árið á hinu þýskumælandi
svæði. Dagur íslenskrar ljóðlistar var
til dæmis haldinn í ellefu borgum 8.
júní síðastliðinn, íslenskar barna-
bókavikur voru haldnar í Köln, og
stór kynning verður á Íslendinga-
sögunum í þýsku menningarmið-
stöðinni Corvey í september.
Að sögn Halldórs verða um tvö
hundruð íslenskar bækur og bækur
um Ísland gefnar út á þýsku á árinu.
Hann benti jafnfram á að áhrifin af
Íslandskynningunni hefðu þegar
teygt sig út fyrir þýska málsvæðið.
Til að mynda hefur útgáfuarmur
bandaríska fyrirtækisins Amazon
ákveðið að gefa út tíu íslenskar
bækur í Bandaríkjunum á þessu ári
og því næsta.
Íslendingar verða með eigin sýn-
ingarskála á svæði Bókaksýningar-
innar. Um hönnun skálans sáu Páll
Hjaltason og Sagafilm. Skálinn er
annars vegar byggður á ótal mynd-
um, sem Íslendingar hafa sent inn af
heimilisbókasöfnum sínum, og hins
vegar á mikilli náttúrulífsmynd sem
var þungamiðjan í sýningarskála Ís-
lands á heimssýningunni í Sjanghæ.
Fasteignamarkaður braggast
60%
fjölgun þinglýstra
fasteignasamninga á
höfuðborgarsvæðinu
Júlí 2010 - júlí 2011
Fasteignamat
ríkisins
S kuldir Stefáns Hilmars Hilmars-sonar, framkvæmdastjóra rekstrar-sviðs 365 og fyrrverandi aðstoðar-
forstjóra og fjármálastjóra Baugs, námu
um tveimur og hálfum milljarði ef mið er
tekið af kröfum í bú hans sem tekið var
til gjaldþrotaskipta í júlí á síðasta ári.
Alls var kröfum lýst fyrir rétt tæpa tvo
og hálfan milljarð. Helstu kröfuhafarnir
eru fimm; gamli og nýi Landsbankinn
með um 200 milljóna króna körfu, Lands-
bankinn í Lúxemborg með 400 milljóna
króna kröfu, Pillar Securisation, einka-
bankalánaþjónusta gamla Kaupþings í
Lúx með um 1,4 milljarða króna kröfu og
þrotabú BGE eignarhaldsfélag með um
400 milljóna króna kröfu sem er tilkom-
inn vegna láns til Stefáns til hlutabréf-
kaupa í Baugi.
Eftir því sem næst verður komist snýst
krafa Pillar um lán vegna kaupa á hluta-
bréfum sem urðu síðar verðlaus. Eignir í
búinu eru litlar sem engar. Eins og greint
var frá í Fréttatímanum var þakíbúð í
eigu Stefáns í Brautarholti seld fyrr á
þessu ári. Heimildir Fréttatímans herma
að sala glæsivillu Stefáns við Laufásveg
til Vegvísis, félags þar sem hann var
framkvæmdastjóri en undir stjórnar-
formennsku móður hans – í september
2008, rétt fyrir efnahagshrunið – sé til
skoðunar hjá skiptastjóra með það fyrir
augum að rifta gjörningnum. Kaupverðið
var 150 milljónir króna, samkvæmt kaup-
samningi, og var greitt með yfirtöku 84
milljóna króna lána frá Byr og 66 milljóna
króna greiðslu sem átti að greiða 18.
september 2009. Fréttatíminn hefur ekki
vitneskju um hvort eða hvernig gengið
var frá þeirri greiðslu á milli Stefáns og
Vegvísis.
Fréttatíminn greindi frá því fyrr á
þessu ári að Vegvísir væri í eigu Stefáns
sjálfs eins og fram kom í ársreikningi
félagsins fyrir árið 2009 þegar hann var
skoðaður 7. apríl. Samkvæmt því hefði
Vegvísir verið eign þrotabús Stefáns.
Stuttu seinna kom hins vegar leiðrétt-
ing frá endurskoðanda félagsins þar sem
fram kom að rangur eigandi félagsins
hefði verið skráður í ársreikningnum.
Réttur eigandi væri móðir Stefáns sem er
jafnframt stjórnarformaður Vegvísis
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Gjaldþrot Kröfur í bú StefánS HilmarSSonar
2,5 milljarða kröfur
í þrotabú Stefáns
alls var kröfum upp á rétt tæplega tvo og hálfan milljarð lýst í bú stefáns hilmars hilmarssonar,
framkvæmdastjóra hjá fjölmiðlarisanum 365 og fyrrverandi aðstoðarforstjóra baugs. stefán var
lýstur gjaldþrota 9. júlí 2010.
Stefán Hilmar Hilmarsson stendur í ströngu þessa dagana.
Heimildir
Fréttatímans
herma að
sala glæsivillu
Stefáns við
Laufásveg ...
sé til skoðunar
hjá skiptastjóra
með það fyrir
augum að rifta
gjörningnum.
barn kostar
allt að 35 milljónum
fólk ætti að athuga heimilisbókhaldið áður
en það býr til barn. það kostnar nefnilega
sitt að eignast það og ala upp, segir í
danska blaðinu jótlandspóstinum. þetta
kemur kannski ekki á óvart en Danirnir
hafa sett verðmiða á barneign og uppeldi.
margt er líkt með skyldum svo að upp-
hæðin gæti verið svipuð fyrir íslenskt barn.
startgjaldið, ef svo má segja, er rúm hálf
milljón króna. Útgjöldin þar til barnið flytur
að heiman eru síðan metin nokkuð rúmt,
eða frá 15,8 til 35,5 milljóna króna. það
fylgir sögunni að fyrsta barn sé dýrast.
uppeldiskostnaður barns númer tvö er
metinn á 8,9 milljónir króna til 18 ára
aldurs. litla systir eða litli bróðir erfa enda
gömlu leikföngin og gömlu fötin. -jh
seðlabankinn
kaupir fleiri evrur
seðlabanki Íslands býðst til að kaupa 72
milljónir evra gegn greiðslu í ríkisverð-
bréfum. Útboðið er liður í áætlun bankans
um losun hafta á fjármagnsviðskiptum.
tilboðum skal skila fyrir 16. ágúst. mark-
miðið er, að því er fram kemur í tilkynningu
bankans, að endurheimta þann gjaldeyri
sem seðlabanki Íslands nýtti til kaupa á
krónum í fyrra útboði og selja krónur til
aðila sem tilbúnir eru að eiga þær í a.m.k.
fimm ár. Þetta er gert með því að bjóða
aðilum sem eiga gjaldeyri sem ekki er
skilaskyldur að kaupa löng skuldabréf
ríkissjóðs sem verða í vörslu í fimm ár.
aðgerðin stuðlar þannig jafnframt að því
að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt
til langs tíma og draga þannig úr endur-
fjármögnunarþörf á meðan losað er um
gjaldeyrishöft. -jh
framkvæmdir í
helguvík í haust
stefnt er að því að framkvæmdir hefjist við
kísilverksmiðjuna í helguvík í september-
lok. árni sigfússon, bæjarstjóri reykjanes-
bæjar, segir í viðskiptablaði morgunblaðs-
ins að fjármögnun tækjakaupa gangi vel.
gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi til
ársins 2013. áætlað er að framleiðsluvirði
á ári verði 10 milljarðar króna, og fram-
leiðslumagnið um 50 þúsund tonn. -jh
nær 60% munur var á fjölda þinglýstra
fasteignasamninga á höfuðborgarsvæðinu í
nýliðnum júlí miðað við sama mánuð í fyrra, að
því er fram kemur á síðu fasteignamats ríkisins.
fjöldi samninga í júlí var 446. heildarvelta nam
12,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern
kaupsamning var 27 milljónir króna. þegar júlí
2011 er borinn saman við júní 2011 fjölgar kaup-
samningum um 19,9% og velta eykst um 13,8%.
Í júní 2011 var 372 kaupsamningum þinglýst,
velta nam 10,6 milljörðum króna og meðal-
upphæð á hvern kaupsamning var 28,5 milljónir
króna. þegar júlí 2011 er borinn saman við júlí
2010 fjölgar kaupsamningum um 58,7% og
velta eykst um 58,8%. Í júlí 2010 var 281 kaup-
samningi þinglýst, velta nam 7,6 milljörðum
króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning
var 27 milljónir króna. -jh
SöGueyjan íSland GríðarmiKil KynninG á íSlenSKri menninGu
Á þriðja hundrað viðburða
auk íslenskra rithöfunda munu dansarar, tónlistarfólk, myndlistarmenn og kvikmyndagerðarfólk
verða áberandi í tengslum við bókasýninguna í frankfurt í haust.
halldór guðmundsson, verkefnastjóri
sögueyjunnar Íslands, kynnti dagskrána í
þjóðmenningarhúsinu í gær. Ljósmynd/Hari
2 fréttir helgin 5.-7. ágúst 2011