Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.08.2011, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 05.08.2011, Blaðsíða 44
Þýska blaðakonan Andrea Walter hefur skrifað bók um ferðir sínar og upplifun af Íslandi. Hún segir landið uppfullt af skemmti- legum tilviljunum og skapandi fólki sem deyr ekki ráðalaust þótt á móti blási. SV Æ Ð I B I Ð  bækur Ferðahandbók um Ísland kemur út Í Þýskalandi Í haust Rakst á Vigdísi Finnboga og sat fyrir Jóni Gnarr É g kom hingað í fyrsta sinn 2003 og fannst Ísland algjör paradís,“ segir þýska blaðakonan Andrea Walter en hún var að skrifa bók um Ísland, Wo Elfen noch helfen: Warum man Island einfach lieben muss (Þar sem álfarnir hjálpa enn: Ástæður þess að maður verður einfaldlega að elska Ísland). „Ég fíla húmorinn, viðhorf fólks og frasann „þetta reddast“. Ég kom svo aftur 2011 og var skíthrædd um að landið hefði breyst eftir hrunið,“ segir Andrea sem róaðist eftir að hafa tekið viðtöl við fólk. „Ég komst að því að Íslendingar eru ennþá skapandi og duglegir að upphugsa sniðugar lausnir. Eins og til dæmis Ólafur Eggerts- son bóndi sem missti næstum býlið sitt þegar gosið varð í Eyjafjallajökli en opnaði í staðinn lítið safn sem fjallaði um gosið.“ Andrea tók viðtöl við fjöldann allan af Ís- lendingum. „Ég sendi inn formlega fyrirspurn til margra en fékk engin viðbrögð frá Vigdísi Finnbogadóttur og Jóni Gnarr því þau voru svo upptekin. Það gerast ótrúlegar til- viljanir á Íslandi og því fannst mér það mjög íslenskt að ég rakst á Vigdísi á listaverkaup- pboði og þannig fékk ég viðtalið við hana. Hún var mjög sjarmerandi og gaman að spjalla við hana um menninguna á Íslandi. Svo settist ég bara niður í ráðhúsinu og rakst á Einar Örn Benediktsson og sagði honum að mig langaði að tala við Jón Gnarr. Svo fórum við bara á kaffihús og ég fékk að taka viðtal við Jón.“ Andrea segir að margt sé ólíkt með Íslendingum og Þjóðverjum. „Mér finnst merkilegt að listamennirnir hafi náð völdum í borginni því grínframboðin hafa aldrei náð meirihluta í Þýskalandi. Ég upplifði að Jón tæki starf sitt mjög alvarlega. Hann vill koma á breytingum, styrkja sjálfs- traust fólks, taka erfiðar ákvarðanir ef á þarf að halda, gera stjórnmálin mannlegri og berjast gegn reiði og árásargirni með því að fá fólk til að hlæja. Hann setur því grínið inn í stjórnmálin og mér finnst það frábær hugmynd.“ Að sögn Andreu er bókin hennar persónuleg ferðahandbók sem fjallar um Ísland í víðu samhengi. „Ég set líka inn ýmsar staðreyndir eins og að Íslendingar elska að rekja fjölskylduna langt aftur í ættir gegnum Íslendingabók, að símaskráin sé flokkuð eftir skírnarnafni og að blöðin birti minningargreinar um fólk þegar það deyr og tilkynni um hvaða Íslendingar eiga afmæli í hverri viku.“ Bára Lind heitir stúlkan Stúlkan sem leikur í Heimsendi Ragnars Bragasonar heitir Bára Lind Þórarinsdóttir en ekki Bára Lind Þórhallsdóttir eins og sagt var í blaðinu. Andrea Walter er þýsk blaðakona sem féll fyrir íslenskri þjóð og hefur skrifað ferða- handbók um upplifun sína af landinu. Bókin verður kynnt á bókamessunni í Frankfurt í október. Ljósmyndari/Katja Velmans „Fyrirmynd okkar í þessu er Groupon.com en það er það fyrirtæki sem hefur vaxið hraðast af öllum fyrir- tækjum í heiminum undan- farið, hraðar en Facebook og Microsoft svo að eitt- hvað sé nefnt,“ segir Kitty Johansen sem opnaði fyrirtækið WinWin ásamt eiginmanni sínum, Ágústi Reyni Þorsteinssyni, við hátíðlega athöfn í Nauthól Bistró í gær. „Fyrirtækið snýst um að bjóða upp á lúxusvörur frá flottum fyr- irtækjum á ótrúlegu verði. Þetta hefur verið algjör sprengja í heiminum en þótt við styðjumst við mód- elið Groupon.com breytum við aðeins áherslum og aðlögum okkur að íslenska markaðnum.“ WinWin býður upp á utanlandsferðir á vegum innlendra og erlendra ferðaskrifstofa, svo að eitt- hvað sé nefnt. „Við verðum líka með atburði eins og tónleika hérlendis sem og erlendis og bjóðum upp á ís- lenska hönnun í skartgrip- um og fatnaði. „Við bjóðum líka upp á nudd, snyrtingu, líkamsrækt og allt sem við kemur góðri heilsu og mat en við vöndum mjög valið á fyrirtækjum sem verða inni á síðunni hjá okkur.“ Lúxus- vörur á frábæru verði Kitty Johansen og Ágúst Reynir Þorsteinsson opnuðu fyrirtæki sitt, WinWin, í gær. Kitty segir módelið sem fyrirtækið byggist á hafa valdið algjörri sprengingu. Kitty Johan- sen er annar eigenda WinWin, sem býður upp á lúxusvörur á góðu verði.  viðskipti Fyrirtæki sem einblÍnir á konur 44 dægurmál Helgin 5.-7. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.