Fréttatíminn - 05.08.2011, Síða 4
Vigdís ávarpar
gesti á Ólafsdalshátíð
Þrotabú Langur tími riftunarmáLa
Hátt í 30 mál þriggja
þrotabúa bíða úr-
lausnar í dómskerfinu
Þrátt fyrir að rúm tvö ár séu liðin frá tugmilljarða gjaldþroti eignarhaldsfélaganna Fons, Baugs
Group og Milestone velkjast hátt í þrjátíu riftunar- og skaðabótamál þrotabúanna á hendur
eigendum í dómskerfinu.
Þ rjú stærstu og mest áberandi gjald-þrot eftir bankahrunið, ef undan eru skildir bankarnir, eru þrot
eignarhaldsfélaganna Fons, sem var í
eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar, Baugs Group, sem var að
stærstum hluta í eigu fjölskyldu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, og Milestone, í eigu
Karls og Steingríms Wernerssona. Lýstar
kröfur í þessi þrjú bú námu hátt í 500
milljörðum og riftunar- og skaðabótamál
sem skiptastjórar búanna þriggja hafa
höfðað eru hátt í þrjátíu.
Öll félögin þrjú urðu gjaldþrota á árinu
2009; Baugur Group í mars, Fons í apríl
og Milestone í september. Á þeim rúmum
tveimur árum sem liðin eru frá gjald-
þrotinu er komin niðurstaða í eitt riftunar-
mál hjá þrotabúi Baugs Group en annars
eru málin nær öll á fyrirtökustigi í dóms-
kerfinu. Skiptastjórarnir virðast vera sam-
mála um að málshraðinn sé eðlilegur.
Erlendur Gíslason, skiptastjóri þrota-
bús Baugs Group, segir í samtali við
Fréttatímann að hann hafi höfðað fimm
riftunarmál á hendur aðilum tengdum
Baugi og eitt skaðabótamál sem er 15
milljarða krafa á hendur Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni. Erlendur segir að einu máli
sé lokið, gegn Karli Georgi Sigurbjörns-
syni, og von sé á niðurstöðu í öðrum
tveimur á næstunni. „Þá standa aðeins
eftir tvö mál, gegn Gaumi annars vegar
og hins vegar fimmtán milljarða riftun
á Hagasölunni. Ég tel málshraðann eðli-
legan miðað við umfang og gagnaöflun,“
segir Erlendur.
Grímur Sigurðsson, skiptastjóri
þrotabús Milestone, hefur höfðað um tíu
riftunarmál gegn eigendum félagsins og
félögum í þeirra eigu.
Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrota-
bús Fons, segir í samtali við Fréttatímann
að hann hafi höfðað þrettán riftunar-
mál sem eru allt frá verktakagreiðslum
upp á sextán milljónir til Almars Arnar
Hilmarssonar, fyrrverandi forstjóra
Sterling, til 4,2 milljarða arðgreiðslu Fons
til Matthews Holding í Lúxemborg þar
sem Pálma og Jóhannesi, eigendum Fons,
er líka stefnt. „Þau sem eru í gangi hafa
tekið tíma vegna matsmála sem enn eru
í gangi. Matsmálin hafa tafið framgang
málanna en þau eru engu að síður í eðli-
legum farvegi,“ segir Óskar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Ég tel
máls-
hraðann
eðlilegan
miðað
við um-
fang og
gagna-
öflun.
Nítjánda fjölskyldustaður
Lunch, brunch og óviðjafnanlegt kvöldverðarhlaðborð
Nítján
da fjöl
skyldu
staður
þar sem
börnin
borða
frítt í s
umar
Hátt í 30 mál bíða
úrlausnar innan
veggja Héraðsdóms
Reykjavíkur. Mynd/Hari
Jón Ásgeir Jóhannesson,
aðalsprautan í Baugi Group.
Pálmi Haraldsson,
annar eigenda Fons.
Karl Wernersson,
stærsti eigandi Milestone.
veður föstudagur Laugardagur sunnudagur
Veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
SumS Staðar allHVaSS Vindur og fremur
Þungbúið. rigning eða SKúrir, einKum
Sunnan- og auStantil.
HöfuðborgarSVæðið: Skýjað að MEStu oG
sMáskúRiR. FReMuR hlýtt.
enn StreKKingSVindur Víða um land.
einHVerJar SKúrir Sunnan- og auStan-
landS, en annarS Þurrt, en miKið til
SKýJað og Áfram milt í Veðri.
HöfuðborgarSVæðið: skýjað Með köFluM
oG að Mestu þuRRt.
SPÁð er Hinu beSta Veðri, lægir og
léttir til um meSt allt land. Hiti allt
að 17 til 19 Stig SunnanlandS og VeStan.
HöfuðborgarSVæðið: léttskýjað oG
hæGuR VinduR.
Vindur, en lægir og léttir til
á sunnudag
Hægfara lægð suður af landinu gerir okkur
lífið leitt. af hennar völdum verður áfram a
og na strekkingsvindur fram á laugardag.
lægðin beinir líka til okkar skýjum og
skúralofti, einkum sunnan- og austanlands.
Á laugardag er útlit fyrir að það verði að mestu
þurrt, s.s. í Reykjavík og á dalvík þar sem
mesta fjölmennið verður. á sunnudag
er breytinga að vænta. þá lægir og
sólin brýst í gegn um mest allt land,
síst þó norðaustan- og austan-
lands. það er milt veður en sólar-
leysi hamlar vænum hita.
16
11
14 10
13
14
12 14
10
12
17
15 16
11
17
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Hagnaður
365 miðla
360 milljónir
Hagnaður 365 miðla,
útgáfufélags Fréttablaðs-
ins, Stöðvar 2 og fjögurra
annarra sjónvarpsstöðva,
Bylgjunnar og fjögurra
annarra útvarpsstöðva,
árið 2010 var 360
milljónir króna eftir
skatta og handbært fé
frá rekstri 1.106 milljónir.
Eigið fé var rúmir tveir
milljarðar um áramót,
að því er Fréttablaðið
greinir frá. heildarvelta
félagsins nam 8.550
milljónum króna síðasta
ár og var eBitda-hagn-
aður 1.004 milljónir
króna. árið 2009 nam
eBitda-hagnaðurinn 808
milljónum króna. þá var
344 milljóna króna tap
eftir skatta. -jh
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands,
flytur ávarp á hinni árlegu Ólafsdalshátíð sem
haldin verður í fjórða sinn á sunnudaginn, að því
er fram kemur á vef héraðsblaðsins Bæjarins
besta. Ólafsdalsfélagið var stofnað 2007 með
það að markmiði að stuðla að eflingu og varðveislu
Ólafsdals í dölum. þar stofnaði torfi Bjarnason fyrsta
búnaðarskóla á Íslandi árið 1880 og var hann starf-
ræktur til 1907. skólahús frá 1896 stendur í Ólafsdal.
nú eru um 230 manns í Ólafsdalsfélaginu.
dagskrá hátíðarinnar verður fjölbreytt.
Fræðsluganga verður um Ólafsdalsjörðina
og sýning í skólahúsinu, „Ólafsdalsskólinn
1880-1907“. Ólafsdalsmarkaður verður
haldinn og veitingar í boði; fjölbreytt hand-
verk, Ólafsdalsgrænmeti, ostar, erpsstaðaís,
kræklingur og kaffiveitingar. kk skemmtir
og leikhópurinn lotta sýnir Mjallhvíti og
dvergana sjö. -jh
lykiltölur fyrir ferðaþjónustuna
hagstofa Íslands hefur gefið út enskan bækling, iceland in
figures 2011, þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land
og þjóð á handhægan hátt. þetta er sextándi árgangur
bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur
átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna,
að því er hagstofan greinir frá. Bæklingurinn skiptist í 18
kafla. efnið er byggt á landshögum, árbók hagstofunnar,
og geymir hann m.a. upplýsingar um veðráttu, umhverfi,
mannfjölda, laun, tekjur, vinnumarkað, atvinnuvegi, utan-
ríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu,
verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál,
skóla, menningu, kosningar og fleira. - jh
Barn varð undir bíl og lést
Barn á sjötta aldursári lést þegar það varð
undir afturhjóli bifreiðar á heimreið við
sumarhús í landsveit í Rangárþingi ytra í
fyrradag. tilkynning barst lögreglu rétt eftir
klukkan hálf sex á miðvikudaginn, að því er
mbl.is greinir frá. Barnið var flutt með þyrlu
landhelgisgæslunnar á landspítalann í
Fossvogi en var úrskurðað látið nokkru eftir
komuna þangað. lögreglan á hvolsvelli og
rannsóknardeild lögregl unnar á selfossi
fara með rannsókn slyssins. -jh
4 fréttir helgin 5.-7. ágúst 2011