Fréttatíminn - 05.08.2011, Qupperneq 42
Plötuhorn Dr. Gunna
Ég vil fara upp í sveit
Helgi Björns & Reiðmenn vindanna
Hott hott á
hesti
Það verður ekki af Helga
Björns skafið að hann er
slingur bisnessmaður.
Hann sameinar þá hlið og
fína söngrödd og mikla
töffara-persónutöfra á
sviði og brosir alla leið í
bankann. Í þriðja skipti er
höfðað til hestafólks með
slögurum sem innihalda
vísanir í hestamennsku
og/eða líf til sveita, enda
hætta menn auðvitað
ekki að grafa hafi þeir
fundið gullæð. Hér er
allt til alls; gullfallegar
myndir af hestum, ellefu
sígrænir slagarar og einn
„nýr“: kántrídemanturinn
Rhinestone Cowboy með
íslenskum texta eftir
Helga. Undirleikurinn er
nettur og fagmannlegur
og hljómurinn þannig að
þetta gæti næstum verið
kóverplata útgefin af SG
árið 1975. Stundum er þó
brugðið á leik og litað út
fyrir strikin, þó aldrei það
mikið að markhópurinn
styggist. Traust fram-
leiðsla.
leopard Songs
Coral
Ekki nógu beitt
Rokk-kvartettinn Coral
hefur aldrei verið ýkja
áberandi þótt þetta
sé önnur platan hans.
Strákarnir spila gítarrokk
sem liggur á íslenskan
mælikvarða einhvers
staðar á milli rokkbanda
eins og Cliff Claven og
indie-rokkbanda eins og
Jan Mayen – stundum
minnir bandið jafnvel á
Deep Jimi og Jet Black Joe.
Þetta eru klárir spilarar og
gítartvennan spinnur og
spilar skemmtilega saman.
Platan fer mjög vel af
stað. The Underwhelmer
er straumlínurokk-köggull
sem ætti að meltast vel á
X-inu og When Lesbians
Attack er flott og vel
samið lag. Margt fleira
gott er í boði og ágætir
sprettir víðsvegar, en
þegar á líður fer að vanta
spennu og fjölbreytni –
lögin renna saman í einn
eintóna rokkgraut og
loftkenndir textar á ensku
bæta litlu við. Þennan hníf
þarf að brýna.
Guð hann myndi gráta
Saktmóðígur
Blóðhrár sori
Suddapönk-hljómsveitin
Saktmóðígur er eins og
kleprar í rasshárum alls
þess sem er hipp og kúl á
Íslandi – að eilífu dæmd
til að vera utangarðs og
lafandi svitastokkin á jaðr-
inum. Móði hefur hamast
á tónleikum og plötum í
tuttugu ár fyrir lítinn en
áhugasaman hóp, en ekki
sent frá sér plötu síðan
1998. Sem betur fer hefur
engin framþróun átt sér
stað á 13 árum. Pönkið er
enn blóðhrátt og skröltir
áfram eins og skrokkur
í sláturhúsi. Karl Pétur
söngvari er villimannslega
æstur og spýtir frá sér
ofbeldis- og klámfengnum
sora, við bæði glatt
strokkpönk og lúshægt
mulningspönk. Vinir Móða
eru í spikfeitum málum
með þetta dúndurglundur.
Svo er umslagið líka gull-
fallegt og ætti að fá ein-
hver hönnunarverðlaun,
að minnsta kosti hjá sado-
maso hönnunarfélaginu.
Í ELDBORGARSALNUM
KRISTJÁN JÓHANNS
STEFÁN HILMARS
DIDDÚ
EGILL ÓLAFS
GISSUR PÁLL
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
JET BLACK JOE
PÁLL RÓSINKRANS
MARGRÉT EIR & THIN JIM
FABULA
JÓN JÓNSSONJÚPÍTERS
GEIR ÓLAFS
DON RANDI
TÓNLEIKAR ÞÚ GETUR!
í Hörpu 27. ÁGÚST til eflingar geðheilsu
Verndari og heiðursgestur frú Vigdís Finnbogadóttir
miðasala á harpa.is
Tónleikarnir byrja kl. 20:40
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
57
84
0
7/
11
Gildir út ágúst.
Voltaren Gel
15% verðlækkun.
100 g. Áður: 3.399 kr. Nú: 2.889 kr.
heimSPeki liStaSafn reykjavíkur GjörninGur liStaSafn kóPavoGS
Heimspekismiðja fyrir ungt fólk verður haldin í
Hafnarhúsinu á laugardag. Heimspekikennararnir
Brynhildur Sigurðardóttir og Ingimar Ólafsson
Waage leiða heimspekilegar samræður um listaverk
þar sem unnið er út frá sýningunni „Sjónarmið: Á
mótum myndlistar og heimspeki“ í Listasafni Reykja-
víkur. Bæði hafa þau reynslu af kennslu í heimspeki
fyrir ungt fólk en grunnur þess er að vekja upp
spurningar og hvetja til sjálfstæðrar og skap-
andi hugsunar.
Gengið verður í gegnum sýninguna þar sem valin
verk verða skoðuð ítarlega til að veita innsýn í þá
grunnþætti er koma að tengslum myndlistar og
heimspeki. Í spjallinu verða aðferðir heimspekinnar
notaðar til að greina og túlka það sem fyrir augu
okkar ber. Foreldrum er einnig velkomið að taka
þátt.
Heimspekilegar samræður um list
Í tengslum við sýninguna „Sjónarmið:
Á mótum myndlistar og heimspeki“ verður
haldin heimspekismiðja fyrir 13 ára og eldri
í Hafnarhúsinu á laugardag.
P álína frá Grund flytur gjörninginn Hverra manna
í Listasafni Kópavogs –
Gerðarsafni á sunnudag-
inn kl. 16. Í gjörningnum
birtist Pálína sem hold-
gervingur sauðkindar-
innar og leiðir áhorf-
endur í gegnum sali
safnsins. Konukindin
varpar skemmtilegu
ljósi á sýninguna Góðir
Íslendingar þar sem
myndlistarmennirnir
Árni Páll Jóhannsson
og Finnbogi Péturs-
son sýna verk sín. Í
innsetningu Árna Páls í
austursal safnsins má sjá
ljósmyndir af sauðfé á
veggjunum og rekaviðar-
drumba og í vestur-
salnum hefur Finnbogi
komið fyrir öryggis-
myndavélum í hring um
áhorfendur og tilheyr-
andi búnaði til að sýna
úr þeim myndir og spila
hljóð. Pálína frá Grund
nýtir sér bæði rýmin og
er forystukind áhorfend-
anna sem hafa áður litið
hana augum í Grímu-
verðlaunaverkinu Völvu
sem í Þjóðleikhúsinu og
einleiknum The Secret
Face eftir Elísabetu
Jökulsdóttur sem sýnt
var á Íslandi, í Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Leikkonan Pálína samdi
einnig listgjörninginn
Sæmerina – skrautsýn-
ingu fyrir Hudson Valley
Center for Contemporary
Art í New York fyrir
opnun á sýningum verka
margra heimsþekktra
listamanna.
Konukind í
Gerðarsafni
Pálína frá Grund
flytur gjörninginn
Hverra manna
í Gerðarsafni –
Listasafni Kópavogs
á sunnudaginn kl.
16. Hún situr hér á
rekaviðardrumbi úr
verki myndlistar-
mannsins Árna Páls.
42 menning Helgin 5.-7. ágúst 2011