Fréttatíminn - 05.08.2011, Side 48
Óskar eftir 50 sjálfboða-
liðum á Hlemm
„Ég mældi og það er mögulega
hægt að troða 50 manns inn til að
fylla sýningargluggann við gamla
innganginn á Hlemmi,“
segir listamaðurinn
Snorri Ásmundsson
en hann óskar nú eftir
50 sjálfboðaliðum til
að taka þátt í gjörningi á Hlemmi
á laugardaginn klukkan 14. „Mig
langar að fólk dvelji í einni kös í
einhvern tíma í rýminu; ekki ólíkt
því að það sé statt í neðanjarðarlest.
Svo er hugmyndin að skipta út eftir
hvern sýningardag.“ Verkið, sem
nefnist „Við erum“, segir Snorri vera
lofsöng sinn til mannfólksins og
hugmyndina fékk hann eftir að hafa
dvalist í stórborgum og dáðst að
mannlífinu og mannfólkinu þar.
Helgi Björns og Páll
Óskar á toppnum
Helgi Björnsson og Reiðmenn
vindanna tróna aðra vikuna í röð
á toppi Tónlistans, lista Félags ís-
lenskra hljómplötuútgefenda yfir
mest seldu diska síðustu viku, með
disk sinn Ég vil fara uppí sveit.
Vinsældir Helga og félaga hans
eru með ólíkindum en alls hafa yfir
20 þúsund eintök selst af þremur
diskum þeirra. Grínarinn Steindi Jr.
veitir Helga harða samkeppni með
disknum Án djóks ... samt djók sem
er með lögum úr þáttunum Steind-
anum okkar sem sýndur var á Stöð
2 í fyrravetur. Þótt breska sveitin
Coldplay sé vinsæl á Íslandi hefur
sveitin ekki roð við Páli Óskari.
Hann er í efsta sæti Lagalistans með
þjóðhátíðarlagið La Dolce Vita. -óhþ
Selja poka til styrktar
UN Women
Hönnunarteymið Marandros; Katla
Rós Völudóttir og Ragnar Már
Nikulásson ásamt fatahönnuðinum
Unu Hlín Kristjáns-
dóttur, sem hannar
undir merkinu Royal
Extreme, hönnuðu poka
til styrktar UN Women
á Íslandi. Hlutverk UN Women á
Íslandi er að vekja landsmenn til
umhugsunar um stöðu kvenna í
fátækustu ríkjum heims og pok-
arnir eru ein leið til að ná til fólks.
Það er ósk listamannanna að með
hverjum poka sem selst aukist með-
vitund landsmanna um samtökin og
stöðu kvenna í þróunarlöndum og á
stríðshrjáðum svæðum. Allur ágóði
af pokunum rennur óskiptur til UN
Women á Íslandi. Þess skal getið að
listamennirnir gáfu alla vinnu sína
og hvetur landsnefndin alla til að
leggja málefninu lið og kaupa sér
poka. Þeir fást í Aurum, GK, Kiosk,
Mýrinni, Kisunni og Minju.
HELGARBLAÐ Hrósið …
... fær Annie Mist sem vann heims-
meistaratitil kvenna í CrossFit um síð-
ustu helgi. Rétt eins og eitt ástsælasta
heljarmenni Íslandssögunnar, Jón Páll
Sigmarsson, er hún ljóshærð og litfríð
og glæsilegur fulltrúi lands og þjóðar.Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Nýtt blað komið út
Ókeypis eintak um land allt
www.goggur.is
G o G G u r ú t G á f u f é l a G
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
AFSLÁTTUR!
30-70%
REKKJUNNAR
ÚTSALA
A
rg
h
!
0
5
0
8
11
• 5 svæða skipt 460 gorma Sleep
Design kerfi eitt fullkomnasta
gormakerfið á markaðnum í dag.
• Steyptir kantar með stífum
kaldsvampi.
• Laserskorinn 5 svæða skiptur
kaldsvampur og margslunginn
poly fiber svampur.
• Stífur klæddur botn með fótum.
EDINBURGH EURO
50%
AFSLÁTTUR
KING KOIL
Queen Size rúm (153x20
3 cm)
FULLT VERÐ 163.600 kr
.
ÚTSÖLUVERÐ
98.160 kr.
ÞÚ SPARAR 65.440 kr.
KING KOIL
King Size rúm (193x203 cm)
FULLT VERÐ 264.223 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
158.534 kr.
ÞÚ SPARAR 105.689 kr.
EDINBURGHQueen Size rúm (153x203 cm)
FULLT VERÐ 266.775 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
133.388 kr.
EDINBURGH
King Size rúm (193x203
cm)
FULLT VERÐ 319.026 kr
.
ÚTSÖLUVERÐ
159.513 kr.
AÐ
EI
NS
FYRSTIR KOMA -
ST
YK
KI
ÖR
FÁ
FYRSTIR FÁ!