Læknablaðið - 01.12.1967, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆ K NAF É LAG I ÍSLANDS
O G læknafe'lagi reykjavíkur
Aðalritst jór i: Olafur Jensson. Meðritstjórar: Magnús Olafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Asmundur Brekkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L.R.)
53. ÁRG. REYKJAVÍK, DESEMBER 1967 6. HEFTI
t
KRISTINN TRYGGVI STEFÁNSSON
PRÖFESSOR
Fæddur 8. 10. 1903. — Dáinn 2. 9. 1967.
Látinn er einn merkasti og mik-
iíhæfasti maður í læknastétt, Krist-
inn Tryggvi Stefánsson prófessor,
einungis tæpra 64 ára að aldri.
Mundi margur hafa ætlað, að hon-
um yrði lengri ævi auðið, enda var
honum meiri líkamshreysti gefin
en flestum öðrum og því sjaldnast
kvellisjúkur. Enginn má þó sköp-
um renna, og vorið 1966 veiktist
Kristinn þann veg, að mjög var í
tvísýnu stefnt um langlífi hans.
Um sumarið 1966 var prófessor
Kristinn skorinn upp vegna
krabbameins í ristli. Hann var síð-
an við allgóða heilsu enn um hríð
og brá sér að vanda á veiðar í rysjóttu veðri á síðastliðnu hausti,
en hann var þrekmenni við hvers konar veiðiskap. 1 byrjun þessa
árs tók heilsu hans að hnigna að marki, og einsýnt þótti, að hverju