Læknablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 20
226
LÆKNABLAÐIÐ
stefndi. Kristni Stefánssyni var þó fjarri skapi að æðrast. Hann
ræddi þannig tæpitungulaust um dauða sinn og þau áhugamál,
er hann vildi láta fram halda að sér látnum.
Kristinn Stefánsson lauk læknanámi við Háskóla íslands ár-
ið 1932. Ári síðar hélt hann utan og hóf nám og rannsóknastörf í
lyfjafræði í Danmörku og Þýzkalandi og einnig að nokkru leyti
í Englandi. 1 Kaupmannahöfn starfaði hann undir handleiðslu
prófessors Bocks og í samvinnu við Moller, sem síðan var lengi
prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla og þekktur
er af kennslubók sinni. I Miinchen starfaði hann með prófessor
Straub, en hann var einn allra þekktasti lyfjafræðingur í Evrópu
á árunum milli heimsstyrjalda. Á báðum þessum stöðum átti hann
þátt í vísindalegum ritgerðum, ýmist einn eða með öðrum. er
vitna um mikla hæfileika til vísindastarfa og leikni við tilrauna-
starfsemi.
Kristni var boðið að ílendast erlendis, en hann kaus að fara
heim. Hann var því næst skipaður aukakennari í lyfjafræði við
læknadeild Háskóla Islands frá 1. október 1937 að telja. Hafði
hann síðan kennslu í lyfjafræði með höndum við deildina óslitið
til dauðadags, ef undan er skilin dvöl við frekara nám og rann-
sóknir í Miinchen árin 1938—1939. Árið 1957 var hann skipað-
ur prófessor.
Prófessor Kristinn var mjög vel menntaður í sinni grein og
fylgdist jafnan með og kynnti sér nýjungar, er fram komu. Hann
lagði mikla alúð við kennsluna og hefur vafalaust gefið fjölda-
mörgum læknanemum gott vegarnesti fram á braut. Hin síðari
ár kvartaði Kristinn þó eigi sjaldan undan því, að kennslan þreytti
hann, en svo mun flestum fara, sem lengi kenna og í mörg horn
verða að líta.
Atvikin höguðu því svo, að verulegur hluti hinna miklu
starfskrafta prófessors Kristins nýttist á nokkuð öðru sviði en
því, er hann hafði einkum aflað sér sérþekkingar á. Er hér átt
við Lyfjaverzlun ríkisins, er hann að heita má skóp úr engu með
hjálp góðra aðstoðarmanna.
Lyfjaverzlun ríkisins varð undir handleiðslu prófessors
Kristins að þjóðþrifafyrirtæki, sem verið hefur ómissandi hlekk-
ur í heilbrigðisþjónustu landsmanna um margra ára skeið. Segja
má, að Lyfjaverzlunin væri óskabarn Kristins, enda var honum