Læknablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ
227
fátt hugstæðara síðustu vikurnar, er hann lifði, en vöxtur og
viðgangur þessa fyrirtækis svo og skipulag þess. Fátt mun og
honum hafa fallið þyngra en aðkast það, er Lyfjaverzlunin varð
stundum fyrir og ekki síður það skilningsleysi, er honum fannst
stjórnvöld oftlega sýna þessu ríkisfyrirtæki.
Kristinn Stefánsson prófessor átti sæti í fjölmörgum nefnd-
um og þótti jafnan tillögugóður. Fór hér allt saman: mikil mann-
þekking, harka og einbeitni, þegar við átti, og á hinn bóginn
leikni í að miðla málum og bræða saman ólíkar skoðanir manna,
ef með þurfti. Hans mun þannig lengi verða minnzt fyrir störf
í nefndum.
Meðal nefnda þeirra, er hann sat í, eru lyf jaskrárnefnd, lyfja-
verðlagsnefnd og lyfjanefnd Tryggingastofnunar ríkisins. Vann
hann í nefndum þessum mikið starf og ekki sjaldan brautryðj-
endastarf. Þá var prófessor Kristinn lengi fulltrúi Islands á fund-
um norrænu lyf jaskrárnefndarinnar.
Fyrir liðlega fjórum árum var stofnað til norrænu lyfja-
nefndarinnar, er gera skyldi tillögur um samræmingu lyfjamála
á Norðurlöndum umfram það, sem orðið er með gildistöku nor-
rænu lyfjaskrárinnar. Prófessor Kristinn var einnig fulltrúi Is-
lands á fundum þessarar nefndar. Honum var mikið áhugamál,
að Islendingar tækju sem mestan þátt í vaxandi samstarfi Norð-
urlandaþjóða á þessu sviði.
Síðastliðin tvö ár sat prófessor Kristinn í bygginganefnd
Landspítalans af hálfu læknadeildar. Var honum mjög í mun að
skipuleggja nánar samband læknadeildar og Landspítalans. Vann
hann þannig ötullega að byggingamálum læknadeildar síðustu
misseri, unz hann þraut krafta.
Prófessor Kristinn stóð um hríð framarlega í félagsmálum
lækna. Hann var þannig formaður Læknafélags Islands í fjögur
ár. Hann vann og drjúgt starf á vegum Rauða kross Islands, og
svo mætti enn telja.
Kristinn Stefánsson prófessor var maður óvenjulega heil-
steyptur og vinfastur og með afbrigðum skyldurækinn, einbeitt-
ur og hiklaus í hverju máli, er hann beitti sér fyrir. Dugnaður
hans í starfi var þannig einstakur, svo sem og vinátta hans var
sérstök. Hið ytra kann prófessor Kristinn á stundum að hafa
virzt hrjúfur og vafalaust verið lagt það til lasts. Þeim, sem