Læknablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ
239
LÆKNABLAÐIÐ
53. árg. Desember 1967
FELAGSPRENTSMIÐIAN H F.
ENDURSKIPULAGNENG
HEILBREGÐISSTJÓRNAR
- HEILBRKGÐISMÁLA-
STOFNUN
Athyglisverð er sú tillaga,
er fram kom á nýlokinni ráð-
stefnu um heilbrigðismál, að
stofna bæri heilbrigðismálaráð,
er vera skyldi landlækni til
ráðuneytis. Raunar felur slík
tillaga í sér, að landlæknisemb-
ætti verði breytt í heilbrigðis-
málastofnun (sbr. efnahags-
stofnun), þar sem mótuð verði
stefna landsmanna í heilbrigð-
ismálum á breiðum grundvelli
undir forsæti landlæknis.
Hugsanlegt er að efla emb-
ætti landlæknis þann veg frem-
ur en stofna til sérstaks heil-
brigðismálaráðuneytis, enda
skortir heilbrigðisstjórnina
miklu fremur sérfræðinga í heil-
brigðismálum en lögfræðinga.
Við heilbrigðismálastofnun-
ina ætti að starfa auk landlækn-
is að minnsta kosti einn yfir-
læknir, sem hefði yfirumsjón
og eftirlit með rekstri spítala,
svo og umsjón með störfum
embættislækna. Vel kæmi til
álita, að slíkur maður hefði til
að bera staðgóða grundvallar-
menntun í heilbrigðisfræði auk
sérstakrar menntunar, er varð-
aði spítalarekstur. 1 þessu sam-
bandi má á það minna, að tóm-
læti íslenzkra lækna gagnvart
heilbrigðisfræði hefur verið
mjög mikið. Þannig mun nú eng-
inn ungur læknir leggja fyrir
sig heilbrigðisfræði til fram-
haldsnáms.
Við heilbrigðismálastofnun-
ina starfaði að sjálfsögðu yfir-
lyfjafræðingur, er fjallaði um
lyfsölumál og hefði eftirlit með
lyfjabúðum og lyfjagerðum.
Einnig kæmi mjög til álita, að
tryggingayfirlæknir starfaði við
heilbrigðismálastofnunina. Þá
þyrfti stofnunin að hafa skrif-
stofustjóra, er stýrði skrifstofu-
liði og væri tengslamaður stofn-
unarinnar við ráðuneytisstjór-
ann í dóms- og kirkjumáiaráðu-
neytinu. Eðlilegt væri, að einn-
ig þessi maður hefði yfirum-
sjón með skrifstofurekstri ríkis-
spítalanna.
1 heilbrigðismálaráði mætti
hugsa sér, að sæti ættu fjórir
læknar auk landlæknis; einn
væri tilnefndur af hálfu lækna-
deildar Háskólans, annar af
hálfu læknaráðs, þriðji af hálfu
Læknafélags Islands og hinn
fjórði væri starfandi yfirlækn-
ir við heilbrigðismálastofnun-
ina. Að auki ættu sæti í ráðinu
yfirdýralæknir, fulltrúar hjúkr-
unarkvenna, tannlækna og