Læknablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 44
244
LÆKNABLAÐIÐ
áreynslu aukizt í 3—4 1 á mínútu. Ventilatio á mínútu er um 7—8
1 í hvíld, við áreynslu 80—100 1. Hraustur maður getur með því
að einbeita sér aukið ventilatio í 140 1/mín., en aðeins í stuttan
tíma.
1 fleiðruholi er undirþrýstingur um —5 cm H20 borið sam-
an við loftþrýsting. Undirþrýstingurinn stafar af „elasticiteti“
lungna og brjósthols. Hækki þrýstingur utan lungnanna, leitast
þau við að dragast saman, svo sem sjá má, ef brjósthol er opnað.
„Elasticitet“ brjósthols hefur gagnstæða verkun og leitast við
að þenja út lungun. Það er samspil þessara afla, sem veldur und-
irþrýstingi í fleiðruholi, annar togar inn á við, hinn út á við. En
lungun hafa annan mikilvægan eiginleika. Rúmmál (volume)
þeirra breytist eftir þeim þrýstingi, er ríkir í fleiðruholi. Þessi
eiginleiki nefnist þanþol (compliance) lungnanna. „Elastieiteti“
mætti líkja við stálfjöður, sem með miklu afli reynir að ná upp-
runalegri mynd. Þanþol hefur eiginleika gúmmíbands, þ. e. a. s.
hefur mikinn teygjanleika við lítið tog.
Þanþol lungnanna má mæla við hæga öndun með því að at-
huga þrýsting í fleiðruholi og jafnframt rúmmálsbreytingar
lungnanna. Auðveldast er að mæla þrýstinginn í vélinda, en liann
er hinn sami og í fleiðruholi og breytist á sama hátt við öndun.
Rúmmálsbreytingar lungnanna eru mældar með spirometer. Við
hæga öndun hjá heilbrigðum manni lækkar þrýstingurinn í
fleiðruholi um 5 cm H20 við hvern lítra innandaðs lofts. Þanþol
lungnanna verður því 1 lítri /5 cm HoO eða 0,2 1 /cm H20.
Við innöndun víkkar brjóstholið, þrýstingurinn utan lungn-
anna lækkar niður í —6—10 cm HL>0. Þanþol lungnanna veldur
útþenslu þeirra, blöðrur lungnanna víkka og loftþrýstingurinn
þar lækkar, en þar eð loft streymir þangað, sem þrýstingur er
lægri, fyllast lungun af lofti. Þessi þrýstingslækkun í brjóstholi
auðveldar blóðinu að streyma til hægra hjartaforhólfs. „Elasti-
citet“ lungna og brjóstveggjar minnkar með aldrinum, og lung-
un hjá eldra fólki verða útþanin, en þanþol þeirra eykst senni-
lega, a. m. k. þurfa lungu í eldra fólki minni þrýstingssveiflur í
fleiðruholi til að ná sömu rúmmálsbreytingum. Þetta var áður
nefnt emphysema, en það er rangnefni; hér er ekki um að ræða
neina eyðingu á lungnavef, heldur aðeins ofþenslu (hyperinflatio).
Öndunarvöðvarnir þurfa ekki aðeins að yfirvinna 'hina
„elastisku“ mótstöðu lungna og brjóstveggjar, heldur einnig þá
mótstöðu, er myndast í öndunarvegunum gegn loftstreyminu.
Þessi mótstaða er við hæga öndun um 2 cm HL,0/lítra/sek. önd-