Læknablaðið - 01.12.1967, Page 68
260
LÆKNABLAÐIÐ
Safnið mun fyrst um sinn verða opið kl. 13—17 alla virka
daga nema laugardaga.
Þá hefur stjórn Domus Medica ákveðið, að á þeim tíma, sem
bókasafnið er ekki í notkun, verði lesstofan frjáls til afnota fyr-
ir félagsstarfsemi lækna, svo sem nefndarfundi, fundi í sérgreina-
félögum og aðra smærri fundi.
Semja ber við framkvæmdastjóra hússins um afnot af les-
stofunni og ef unnt er með nokkrum fyrirvara.
Veitingar eru fáanlegar, ef þess er óskað. Gestir eru beðnir
að ganga vel um húsnæðið.
Bókasafnsnefnd Domus Medica sendi formönnum sérgreina-
félaganna bréf í ágúst síðastliðnum, þar sem þess var farið á
leit við sérfélög innan Læknafélags Reykjavíkur, að þau legöu
safninu til nokkur valin rit, sem gefin eru út í viðkomandi grein
læknisfræðinnar. Svar hefur því miður ekki borizt frá nokkrum
félaganna, og eru forráðamenn þeirra góðfúslega beðnir að láta
vita við fyrsta tækifæri, hvort þeir vilja sinna þessu nýmæli.
Einstaklingar, sem kynnu að vilja gefa safninu tímarit eða
uppsláttarrit eða leggja því lið á annan hátt, eru og vinsamlega
hvattir til að gefa sig fram við undirritaðan.
Æskilegt er, að safnið geti sem fyrst komið að tilætluðum
notum, en það er undir velvilja og skilningi lælmanna sjálfra
komið.
Guftmundur Björnsson.
fílT SENfí EÆKNAfíEAÐINU
Eftirfarandi rit hafa borizt blaðinu:
A Cinical Survey of Parkinsonism in Iceland eftir Kjartan E.
Guðmundsson, ssm birtist í Acta Neurologica Scandinavica, Supple-
mentum 33, Volume 43, 1967. Enn fremur eftir sama höfund: Cerebral
Palsy in Iceland, sem birtist í Acta Neurologica Scandinavica, Supple-
mentum 34, Volume 43, 1967.
Þá hefur blaðinu borizt Acta Pharmacologica et Toxicologica, Vol.
25, pag. 483—484, með minningargrein um prófessor Kristin Stefáns-
son eftir Þorkel Jóhannesson.
Blaðið sendir höfundum beztu þakkir.