Læknablaðið - 01.04.1968, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ
51
Svo sem vænta mátti af slíkum fjör- og athafnamanni, átti
hann fjölmörg hugðarefni, er hann ræddi um við kunningja
sína og á opinl)erum vettvangi. Hæfileikar hans voru fjölþættir.
Hann var ágætlega ritfær og sagði vel frá.
Um fimmtugt veiktist Jónas af sykursýki, sem ágerðist, er
aldur færðist yfir hann. Síðustu misserin, er Jónas iifði, gekk
hann ekki heill til skógar. Hann lét þó lítið á slíku bera, en hélt
gleði sinni óskertri. í marzmánuði 1967 var hann skorinn upp í
Bandaríkjunum (New York) við blöðrusteinum. Fór hann lil
Danmerkur eftir þá aðgerð sér til hressingar, en náði sér ekki
sem skyldi. Hann kom heim seinni hluta júnímánaðar og fór
þegar að sinna skyldustörfum sínum. Honum var ráðlögð frekari
hvíld sér til hressingar, svo að hann mætti ná hetri heilsu, en
að morgni liins 28. júlí andaðisl hann skyndilega. Banamein
hans var hjartaslag. Otför hans var gerð frá Dómkirkjunni í
Bevkjavík 2. ágúst 1967.
Með Jónasi Sveinssyni er genginn snjall og duglegur læknir
og góður drengur. Þeir sakna hans mest, er þekktu hann bezt.
Kristján Hannesson.
Ég kynntist Jónasi Sveinssyni talsvert síðustu þrjátíu ár ævi
hans. Það, sem mér fannst bera mest á í skapgerð hans, voru
miklir persónutöfrar, glaðværð, óvenjuleg atorka og vinnuþrek,
greiðvikni og hjálpsemi, lipurð í framkomu og glæsileg gestrisni,
þar sem hann var hrókur alls fagnaðar.
Hann fvlgdist sérlega vel með nýjungum í læknisfræði og á
fjölda mörgum öðrum sviðum. Hann liafði svo margt nýtt að
segja, að ég heyrði hann varla endurtaka sjálfan sig. Þó sagði
hann oft: „Lífið er dásamlegt“ og hætti einu sinni við: „Bara ef
maður kærir sig um að liafa það þannig.“
Ég hef oft hugleitt, hvilíkur regimnunur er á þeim fáu mönn-
um, sem liafa þannig lífsviðhorf, og hinum, sem sjá aldrei nema
ljótt, öndvert og illt í tilverunni og horfa þá oftast á sína eigin
spegilmynd. Jónas var síkátur og skemmtilegur, bráðgreindur,
fljótur að liugsa, setti lnigsun sína fram á lifandi hátt. Það var
ekki nokkur leið að láta sér leiðast í návist hans eða sitja eins og