Læknablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ
245
augum, svo að öruggt væri, að stofnunin yrði til hagsbóta fyrir alla
stéttina. Taldi hann rétt, að tillög yrðu framvegis í formi lána, en
ekki óafturkræfra framlaga.
Arinbjörn Kolbeinsson sagði aftur nokkur orð og taldi lánsfyrir-
komulagið heppilegra.
Þórður Oddsson taldi lánsfyrirkomulagið heppilegra. Þá stakk
hann upp á, að stjórn Domus Medica yrði þannig skipuð í framtíðinni:
einn fulltrúi frá Læknafélagi íslands, einn fulltrúi frá Læknafélagi
Eeykjavíkur og ein,n fulltrúi frá Félagi héraðslækna, sem væntanlega
yrði stofnað á næstunni, enda kvað hann ekki vammlaust, að slíkur
félagsskapur væri ekki til. Þá gagnrýndi hann með nokkrum orðum að-
stöðu þá, sem læknar úti á landi hefðu í Domus Medica enn sem
komið er.
Bjarni Bjarnason lagði fram tillögu um hugsanlegar breytingar
á skipulagsskrá Domus Medica og um samskipti við L.í. (fsk. 4).
Arinbjörn Kolbeinsson lagði til, að málinu yrði frestað til næsta
morguns, þegar formaður Læknafélags Reykjavíkur kæmi aftur til
fundar, en hann varð að fara frá vegna smáslyss.
Bar fundarstjóri upp frestunartillöguna frá Arinbirni Kolbeinssyni,
og var hún samþykkt samhljóða.
Skýrsla um Þá var tekin fyrir skýrsla Lífeyrissjóðs lækna. Ekki lá
Lífeyrissjóð fyrir nein endanleg skýrsla stjórnar Lífeyrissjóðs lækna,
lækna en Víkingur H. Arnórsson fór nokkrum orðum um sjóð-
innogstarfsemihans og las upp bráðabirgðauppgjör. Áár-
inu 1966 hafði verið greitt í sjóðinn 1 milljón 31 þúsund krónur og
árið 1967 3 milljónir 225 þúsund krónur; að viðbættum vöxtum árið
1967 var innistæðan 4 milljónir 432 þúsund krónur. Tók Víkingur
skýrt fram, að hér væri um bráðabirgðauppgjör að ræða. Þá gat hann
þess, að sjóðurinn hefði nú hafið lánastarfsemi og hefði lánað nokkrum
læknum víxla til sex mánaða. Þá las Víkingur bréf frá fjármálaráðu-
neytinu, sem nýlega hafði borizt. í bréfinu er lýst yfir, að lífeyris-
sjóðagreiðslur lækna megi fara allt upp í 75 þúsund krónur árlega og
sú upphæð verði frádráttarbær til skatts.
Kosning_ Þá var gengið að kosningu í fastanefndir. Fyrst var kosið í
nefnda samninganefnd. Fyrir í nefndinni voru Friðrik Sveinsson,
Bragi Níelsson, Guðmundur H. Þórðarson og Valgarð Björns-
son og voru endurkjörnir, en auk þess var kjörinn Örn Bjarnason frá
Vestmannaeyjum.
Þá voru kjömir í gjaldskrárnefnd Jón Þorsteinsson, Páll Sigurðs-
son og Halldór Steinsen. Jafnframt var stjórn L.f. heimilað að til-
nefna þrjá varamenn, ef með þyrfti.
í gerðardóm voru kosnir Grímur Jónsson og Páll Sigurðsson og
varamenn Guðmundur Karl Pétursson og Torfi Bjarnason. Þá var kos-
inn endurskoðandi Guðmundur Björnsson og til vara Bjarni Konráðs-
son.