Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1968, Side 38

Læknablaðið - 01.12.1968, Side 38
256 LÆKNABL AÐIÐ 3. Tapio Elivila frá AKAVA í Helsinki, 4. Sigfús Gunnlaugsson frá Bandalagi háskólamanna í Reykjavík. Fyrirlesarar voru 11 talsins, bæði prófessorar frá háskólunum í Svíþjóð, sem fluttu fræðsluerindi, og embættismenn SACO, sem skýrðu frá starfsemi bandalagsins og þeim málum, sem efst voru á baugi meðal háskólamanna í Svíþjóð. Fyrsta daginn voru haldnir fyrirlestrar um hagfræðileg efni, og að þeim loknum var þátttakendum skipt niður í umræðuhópa, þar sem tekin voru til meðferðar ýmis þau vandamál, er ræðumenn höfðu fjall- að um. Síðan skilaði hver hópur áliti, og fyrirlesarar gagnrýndu niður- stöður hópanna eftir því, sem við átti. Annan daginn, þriðjudaginn 22. ágúst, var fjallað um tölfræði, hugtök og aðferðir, um þróun vinnumarkaðarins og skipulagsmál hans, fagfélög og starfsemi þeirra. Einnig gerði framkvædastjóri SACO grein fyrir uppbyggingu bandalagsins og þeim verkefnum, sem fram undan væru. Síðast á dagskrá þennan dag var ávarp frá systursamtökum, þ. e. gestirnir skýrðu frá starfsemi bandalags háskólamanna, hver í sínu landi, og svöruðu fyrirspurnum. Ég skýrði m. a. frá þeim samningum, sem læknasamtökin gerðu við riki og Reykjavíkurborg í júní 1966. Miðvikudaginn 23. ágúst var nær einungis fjallað um viðfangs- efni SACO, kjaramál háskólaborgara og skipulagsmál þeirra, og voru þá mættir allir helztu embættismenn SACO til að flytja erindi og svara fyrirspurnum um bandalagið. Um kvöldið voru svo hópumræður með svipuðu sniði og áður. Fimmtudaginn 24. ágúst voru haldnir fyrirlestrar um gerð kjara- samninga og undirbúning þeirra, cg síðdegis þann dag var settur á svið sjónleikur um samninga milli cpinberra aðila og fulltrúa SACO, þar sem teknar voru til meðferðar kröfur opinbers starfsmanns vegna ferðakostnaðar og dagpeninga og málið flutt af hálfu samningadeildar viðkomandi fagfélags. Föstudaginn 25. ágúst var fjallað um áróðurs- og upplýsingastarf- semi, og einnig var þá á dagskrá liður, sem nefndist: „SACO’S kansli svarar pá frágor och diskuterar allt med alla“, og urðu þar allfjörug orðaskipti. Að kvöldi var svo haldið kveðjuhóf, sem stóð fram eftir nóttu. Að morgni laugardags fóru svo fram slit ráðstefnunnar, og var þá farið yfir einstaka liði hennar og leitað eftir gagnrýni þátttakenda. Enda þótt erindi þau, sem flutt voru á ráðstefnunni, hafi að veru- legu leyti verið sniðin fyrir hina sænsku þátttakendur og einkum fjall- að um hlutverk og skipulag SACO, tel ég, að fróðlegt hafi verið að sækja þing þetta, og vorum við gestirnir sammála um, að það hafi verið til mikils gagns fyrir okkur að eiga þess kost að sitja það. Sigfús Gunnlaugsson.“ Þá hefur L.í. borizt fyrirspurn frá BHM um tekjur lækna. Bréfi þessu var svarað munnlega af framkvæmdastjóra, en eins og kunnugt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.