Læknablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 40
258
LÆKNABLAÐIÐ
SG/IB.
22. febrúar ’68.
Hr. læknir Daníel Daníelsson,
Hultenheimsvagen 12, Oskarshamn,
Sverige.
Vegna fyrirspurna þinna í bréfi dagsettu 30/8 ’67 vill stjórn L.í.
taka fram eftirfarandi:
1. Föst laun. Æskilegt væri að fara eftir eyktasamningi þeim, sem
gerður var milli L.R. og Stjórnarnefndar ríkisspítalanna fyrst
vorið 1966. Líta ber á þann samning sem lágmarkssamning, en
stjórn L.í. hefur ekkert við það að athuga, þótt samið verði um
hærri greiðslur en þær, sem í þeim samningi koma fram. Þar
sem þú hefur ekki sérfræðiviðurkenningu, myndir þú fara í ein-
hvern launastiga (1.—5.) skv. mati starísmatsnefndar L.í.
Að auki leggjum við til, að samið verði um 25% administrations
tillegg, þar sem greiðslur, sem gefnar eru upp í 1. grein samn-
ings, innifela ekki í sér neitt fyrir administration.
2. Þér og sjúkrahússstjórninni er heimilt að semja um hvaða
eyktafjölda á viku, sem ykkur þykir henta. Stjórn L.í. þykir
að vísu líklegt, að hér sé um svo mikið og tímafrekt starf að
ræða, að semja eigi um fullan vinnutíma, eins og samningurinn
gerir ráð fyrir. Greiðsla kæmi hins vegar fyrir 15 eyktir, og
tekur þú þá á þig þá áhættu, að vinnutími geti orðið allt að 50
tímum á viku skv. síðustu málsgr. 1. greinar. Stjórn L.í. viður-
kennir fúslega, að hún hefði kosið, að þessi yfirvinnu-áhættu-
kafli væri ekki fyrir hendi og að laun þau, sem uppgefin eru
fyrir 15 eyktir, væru greidd fyrir 12 eyktir og aðrar tölur fyrir
færri eyktir hækkuðu að sama skapi. Við teljum það því kost,
ef í þínu tilfelli reyndist unnt að breyta samningunum í sam-
ræmi við þetta. Það væri strax betra að fækka áhættustundun-
um (sem nú eru 16 á viku), ef ekki reynist unnt að afmá þær
alveg.
3.—6. Varðandi þessi atriði vísast til áðurnefnds samnings, en hann
tekur fram um öll þessi atriði.
Samningurinn fjallar ekki um nein fríðindi, en þér er að sjálf-
sögðu heimilt að semja um fríðindi utan þessa samnings.
Stjórn L.í. leggur fremur gegn því, að eitthvert þeirra atriða,
sem samningurinn tekur til, verði greitt með einhverjum fríð-
indum, sem oft er erfitt að meta réttilega til fjár.
Bílastyrkur er enginn, en þér og sjúkrahússtjórninni er að sjálf-
sögðu heimilt að semja um hann.
Klinik. Samningurinn nær til starfa læknisins fyrir sjúkrahúsið.
Klinikstörf læknisins, þ. e. við utanspítalasjúklinga, ná því ekki til
hans að öðru leyti en því, hverjar takmarkanir samningurinn setur á
störf utan spítala, sbr. 7. grein.
Ef þú hyggst starfa mikið við utanspítalasjúklinga, sem stjórn L.R.
viðurkenndi óæskilegt, þegar takmarkanir á praxís voru samþykktar,
vildum við leggja til, að um aðstöðuna yrði samið alveg sérstaklega.