Læknablaðið - 01.12.1968, Síða 42
260
LÆKNABLAÐIÐ
Lœknisþjónusta fyrir síldarsjómenn.
Athugasemdir frá Lœknafélagi íslands.
Að undanfömu hafa orðið allmikil blaðaskrif um læknisiþjónustu
fyrir síldarsjómenn á fjarlægum miðum, og nú fyrir skömmu var málið
rætt í ríkisútvarpinu í þættinum „Um daginn og veginn“. í umræðum
þessum hefur komið fram, að stofnuð hafi verið staða læknis, sem ætlað
er að þjóna síldarflotanum á fjarlægum miðum. Gefið hefur verið í
skyn, að mál þetta hafi verið undirbúið, laun ákveðin og staðan aug-
lýst, en enginn læknir sótt um hana. Hefur læknastéttin, og raujiar
helzt ungir læknar, orðið fyrir harðri gagnrýni fyrir skort á þegnskap
í sambandi við þetta mál, og því hefur verið haldið fram, án frekari
skýringa, að læknar hafi verið ófáanlegir að taka að sér starf þetta.
í þessu sambandi vill stjórn L.í. taka fram eftirfarandi:
a) Með lögum nr. 13, 1967, var ríkisstjórninni gefin heimild til
þess að ráða lækni vegna síldarflotans á fjarlægum miðum.
b) Starf þetta mun aldrei hafa verið auglýst.
c) Okkur er ókunnugt um, að ráðstafanir hafi verið gerðar til
þess að skapa viðunandi starfsaðstöðu fyrir væntanlegan lækni.
d) Ekki er okkur kunnugt um, að nokkrum lækni hafi formlega
staðið til boða að takast þetta starf á hendur, og því enginn
haft raunhæft tækifæri til þess að þiggja það eða synja því.
e) Frumvarp að lögum þeim, er áður getur (nr. 13, 1967), var
aldrei borið undir Læknafélag íslands né heldur verið haft
samráð við L.í. um framkvæmd laganna. Tími til undirbúnings
þessa læknisstarfs hefur verið skammur, enda mun undirbún-
ingsskortur vera svo alger, að heilbrigðisstjórn mun eigi hafa
treyst sér til þess að auglýsa starfið.
Augljóst er, að þeir, sem hafa fjallað um lagasetninguna og rætt
málið í blöðum og útvarpi, hafa ekki gert sér ljóst, að hér er um þann-
ig starf að ræða, að til þess þarf að ráða lækni með mun meiri starfs-
reynslu og þekkingu, einkum í skurðlækningum, en hægt er að ætlast
til af nýútskrifuðum læknum, hvað þá læknanemum.
Starfsaðbúnaður verður að vera þannig, að eigi sé teflt á óþarfa
hættu þótt gera þurfi læknisaðgerðir í sambandi við slys eða bráðá
sjúkdóma,- auk þess þarf nauðsynleg hjúkrun og eftirmeðferð að vera
tryggð. Það er því að áliti stjórnar L.í. næsta gagnslítið að senda lækni
til síldarflotans, nema honum sé búin viðunandi starfsaðstaða og séð
fyrir nauðsynlegustu aðstoð.
Reykjavík, 13. september 1967.
Stjórn Læknafélags íslands.
Skömmu síðar voru fulltrúar L.í. kallaðir á fund í dómsmálaráðu-
neytinu ásamt fulltrúum útgerðarinnar og vandamál sjómanna varð-
andi læknishjálp rædd þar.
Þetta mál var síðan rætt allýtarlega á ýmsum stjórnarfundum og
samln um það eftirfarandi greinargerð:
í ntvarpsþættinum „Um daginn og veginn“ mánudaginn 11. sept.
ræddi Valdimar Jóhannesson, blaðamaður við dagbl. Vísi, um lækna-
skort síldveiðiflotans á fjarlægum miðum, og var þar nokkuð veitzt að