Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
265
að taka upp tímabundnar ráðningar í ýmis störf hjá ríkinu í stað ævi-
langra veitinga, eins og nú tíðkast.
Virðingarfyllst,
F. h. stjórnar Læknafélags íslands,
Friðrik Sveinsson, ritari.
10. Dcjmus Medica Allmikið hefur verið rætt um fjármál Domus
Medica, og hefur hússtjórn Domus Medica skýrt
stjórn L.í. frá því, að lokið sé uppgjöri á byggingarkostnaði hússins,
svo og reksturskostnaði þess árið 1967; hafa reikningar þess verið birt-
ir í Læknablaðinu 1. tbl. 1968.
Stjórn L.í. hefur rætt við stjórn L.R. og formann stjórnar Domus
Medica um framtíðarfyrirkomulag á fjárframlögum læknafélaganna
til þess að standa straum af skuldum D.M, Stefnt er að því, að framlög
L.í. til Domus Medica verði framvegis lán, en ekki óafturkræft fram-
lag. Þá hefur verið stungið upp á því, að vextir af þessum lánum verði
eigi borgaðir út fyrr en eítir 10 ár. Þá verði bæði vextir og höfuðstóll
greitt sem „annuitetslán“ á 10 árum. Á aðalfundi L.R. í marz 1968 var
samþykkt tilmæli þess efnis, að framlag ársins 1968 yrði ekki fellt
inn í þetta lánafyrirkomulag, heldur yrði það ásamt því, sem hingað til
hefur verið greitt, skoðað sem vaxtalaust framlag og jafnvel óendur-
kræft.
11. Styrktarsjóður Nokkrir sjúkrahússlæknar við Landspítala og
lækna Borgarspítala hafa unnið að því, að stofnaður
verði „Styrktarsjóður lækna“. Þeir hafa lagt fram
sem stofnfé í því skyni 290.000.00 kr. Gerð hefur verið skipulagsskrá
fyrir sjóðinn, og Læknafélag Reykjavíkur hefur samþykkt hana á
síðasta aðalfundi. Af hálfu L.í. hefur Víkingur H. Arnórsson verið til-
nefndur í stjórn sjóðsins.
Ætlazt er til þess, að sjóður þessi verði á vegum Læknafélags
íslands.
Fylgir hér greinargerð um stofnun þessa sjóðs.
Þeir 29 læknar, sem vegna óánægju með launakjör og starfs-
aðstöðu höfðu sagt upp stöðum sínum á ríkisspítölunum og Borgar-
spítala Reykjavíkur fyrri hluta árs 1966, ákváðu að leggja til hliðar
10% af launum sínum, meðan á deilunni stæði, í því skyni að geta
veitt fjárhagslegan stuðning, ef einhver úr hópnum yrði fyrir verulegri
tekjurýrnun. Helzt var búizt við, að yngstu læknarnir, sem ekki væru
búnir að fá lækningaleyfi, þyrftu á þessu að halda, svo og þeir, sem
ekki höfðu haft nein störf með höndum utan viðkomandi stofnunar,
t. d. læknar á rannsóknastofum og röntgendeildum.
Að beiðni stjórna sjúkrahúsanna sinntu læknarnir áfram nauð-
synlegustu störfum á viðkomandi stofnunum, meðan á deilunni stóð,
og þurfti enginn á fjárhagslegri aðstoð að halda, en í sjóðinn söfnuðust
kr. 267.911.00. Hefur hann síðan staðið óhreyfður og bætt við sig
vöxtum.
Á fundi 16. janúar 1968 samþykktu 16 þessara lækna að gefa sína
hlutdeild í þeim peningum, sem söfnuðust, til sérstakrar sjóðsstofnunar,