Læknablaðið - 01.12.1968, Side 52
268
LÆKNABLAÐIÐ
Slysatrygging:
Ef um varanlega örorku er að ræða vegna slyss eða lömunarveiki,
greiðist ákveðin upphæð í hlutfalli við örorkustigið. Við slys eða
tannskaða vegna slyss, hvort sem slys verður í vinnu eða utan,
svo og við lömunarveiki, greiðist lækniskostnaður og tannviðgerð-
ir samkvæmt tryggingarskilmálunum, svo framarlega sem þessar
bætur eru ekki greiddar annars staðar frá samkvæmt lögum eða
sérstöku samkomulagi.
Sjúkratrygging:
Sjúkrabætur eru greiddar vegna veikinda, eftir að biðtíma lýkur,
og greiðist ofannefnd upphæð við algeran starfsorkumissi, ef hann
er 50% eða meiri. Bætur greiðast fyrir sjúkdóm þann eða slys,
sem olli starfsorkumissi, og meðan starfsorkumissir er fyrir hendi,
þó ekki lengur en til þess aldurs tryggða, sem segir í hópsamningi,
eða um þann tíma, sem tiltekinn er í tryggingarskilmálum, ef um
er að ræða sjúkdóm eða slys, sem valdið hefur starfsorkumissi,
áður en aðili gekk í tryggingu.
Eyðublöð um heilsufarslýsingu, sem jafnframt telst umsókn um
nefnda hóptryggingu, fást hjá Hagtryggingu h.f., Eiríksgötu 5, eða á
skrifstofu læknafélaganna í Domus Medica.
14. Afmælis- Hinn 14. janúar 1968 átti L.í. 50 ára afmæli, en þar
liátíð L.í. sem sá tími var óhentugur til hátíðahalda, voru ekki
gerðar neinar ráðstafanir til að halda upp á afmælið á
þeim degi. Fyrirhugað er, að haldin verði afmælishátíð næsta haust,
sennilega fyrstu helgi í október, en undirbúningur að þeirri hátíð er
eigi hafinn. Telur stjórn L.Í., að þessi tími muni henta læknum almennt
miklu betur en janúar.
15. Erlend Nokkur bréfaviðskipti hafa verið við erlend læknafélög.
læknafélög Ársfundur World Medical Association er haldinn í
Ástralíu sumarið 1968, og eru eigi tök á því þá fyrir
L.í. að senda fulltrúa þangað, og hefur danska læknafélagið fengið
umboð til þess að fara með atkvæði L.í. á þeim fundi.
16. Læknablaðið Ritstjóri Læknablaðsins hefur skýrt frá því, að aug-
lýsingaverð hafi verið hækkað til þess að bæta fjár-
hag blaðsins, sem hefur verið frekar bágborinn. Þá hefur verið um það
rætt á stjórnarfundum L.í. að auka útgáfu blaðsins og senda það flest-
um aðildarfélögum W.M.A. og fá í staðinn tímarit viðkomandi félaga.
Eftir upplýsingum ritstjórnar Læknablaðsins mundi þessi útgáfuaukn-
ing verða of kostnaðarsöm. Blaðið er nú þegar sent allmörgum bóka-
söfnum víða í Evrópu, og það er einnig skráð í Index Medicus.
17. Codex Ethicus Svo sem kunnugt er, var nýr Codex Ethicus sam-
þykktur fyrir Læknafélag íslands á síðasta aðal-
fundi þess. Hefur Codex nú verið prentaður og sendur öllum læknum.