Læknablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 57
LÆKNABLAÐIÐ
269
Ólafur Björnsson læknir og Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag. unnu
að undirbúningi prentunar og útgáfu ritsins.
18. Gerðadómur Eitt mál lá fyrir gerðadómi frá fyrra starfsári (1966
—1967). Málið mun ekki hafa verið tekið fyrir af
gerðadómi, en þess ber að gæta, að báðir aðalmenn L.í. í dómnum féllu
frá á árinu.
19. Lagabreyt- Ný lög voru samþykkt fyrir L.í. á síðasta aðalfundi.
ingar L.í. Með tilliti til þess, að fleiri lagabreytingar myndu
brátt nauðsynlegar, lét stjórnin eigi prenta lögin,
heldur aðeins fjölrita þau.
Við athugun á starfsemi félagsins og núgildandi lögum hefur
stjórn L.í. talið þörf á að bera fram tillögur um lagabreytingar á næsta
aðalfundi. Tillögur þessar fylgja hér með. Ástæður fyrir tillögunum
eru einkum þessar:
Samkv. lögum Læknafélags íslands og aðildarfélaga þess eru full-
trúar á þing L.í. kosnir til tveggja ára. Hins vegar er ekki nauðsyn-
legt að kjósa stjórn L.í. úr hópi fulltrúa. Af þessu leiðir, að stjórnar-
menn L.í. geta verið án atkvæðaumboðs frá sínu aðildarfélagi nema
með sérstöku samkomulagi við stjórn aðildarfélags.
Annað atriði í sambandi við lagabreytingarnar er það, að skrif-
stofan annist innheimtu félagsgjalda, en nokkur misbrestur hefur verið
á því, að náðst hafi inn öll félagsgjöld, og teljum við, að með þessu
móti verði meiri líkur, að full innheimta náist. Varðandi innheimtu
læknafélaga úti á landi virðist eðlilegast, að skrifstofan innheimti allt
félagsgjaldið, bæði hluta L.í. og líka hluta svæðafélagsins, en sendi
stjórn svæðafélagsins mismuninn.
20. „Centromed“ Stjórn L.í. og stjórn L.R. hafa rætt möguleika á því
að stofnsetja innkaupafyrirtæki fyrir læknasamtök-
in svipað því, sem tíðkast í Svíþjóð. Komið hefur fram sú tillaga, að
fyrirtækið verði kallað „Centromed" og verði hlutafélag. Nú er það
svo, að hlutafélög verða ekki stofnuð nema af einstaklingum, og verður
stjórn L.í. því að leita til aðila innan samtakanna um að stofna þetta
félag. Læknafélag íslands mundi síðan kaupa 90% af hlutafé á nafn-
verði og verða því raunverulegur eigandi þessa fyrirtækis. Eftir laus-
lega athugun, sem farið hefur fram, virðist því mögulegt að reka þetta
fyrirtæki með hagnaði og létta þannig á skrifstofukostnaði félagsins.
21. Formanna- Formannaráðstefna aðildarfélaga L.f. var haldin í
ráðstefna Reykjavík 20. og 21. apríl. Þar voru undirbúin og
kynnt ýmis mál fyrir aðalfund. Fer hér á eftir fundar-
gerð ráðstefnunnar.
Fundur stjórnar L.í. með formönnum svæðafélaga L.í. laugardag-
inn 20. apríl 1968. Fundurinn hófst kl. 10 í Domus Medica. Formaður
L.í. setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Fundinn sátu: Arinbjörn Kolbeinsson, formaður L.Í., Ásmundur
Brekkan, gjaldkeri L.Í., Friðrik Sveinsson, ritari L.Í., Örn Bjarnason,