Læknablaðið - 01.12.1968, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ
273
mörg héruð, einkum vestanlands og austan, eru nú læknislaus, eða
verða það á næstunni. Allir voru sammála um nauðsyn læknamiðstöðv-
anna; þyrfti því að herða róðurinn fyrir stofnun þeirra.
Gísli Auðunsson og Helgi Þ. Valdimarsson bentu á, hve þjónustu
við strjálbýlið af hálfu hins opinbera væri ábótavant, samgönguleysið
væri geigvænlegt.
Þá greindi Helgi Þ. Valdimarsson frá athyglisverðri tilraun, sem
væri verið að gera fyrir vestan. Til Flateyrar réðst á síðastliðnu hausti
dugleg hjúkrunarkona, en þar er nú læknislaust. Hjúkrunarkonan er
til aðstoðar héraðslækninum á Þingeyri, en hann gegnir Flateyrarhéraði
jafnframt.
Auk þess tóku til máls Jónas Oddsson og Páll Gíslason.
X. Könnun yngri lœkna
Helgi Þ. Valdimarsson sýndi fundarmönnum spurningaeyðublað,
sem öllum læknum 40 ára og yngri var sent síðastliðið haust. Ekki er
búið að vinna úr svörunum, en heimtur hafa verið góðar, og svör eru
enn að berast.
XI. Frá svœöafélögum
Páll Gíslason þakkaði stjórn L.í. fyrir frumkvæði að ráðstefnu um
heilbrigðismál síðastliðið haust.
a) Þó að árangur verði e. t. v. oft ekki mikill af slíkum ráðstefnum,
hefðu þær þó sitt gildi og ýttu við mönnum. Gerði Páll það að til-
lögu sinni, að á næsta hausti gengist L.í. fyrir ráðstefnu og nú um
læknamiðstöðvar eða e. t. v. einhvern annan þátt heilbrigðismála.
b) Þá ræddi Páll um stöðuveitingar. Taldi hann, að læknum bæri að
senda L.í. afrit af umsóknum sínum um stöðu, t. d. á sjúkrahúsun-
um, en misbrestur vill verða á því. Menn eru oft og tíðum settir í
stöður, en ekki ráðnir og sitji þannig í embætti um langan tíma.
Óskaði Páll eftir því, að stjórn L.í. athugaði þetta mál.
c) Þá ræddi Páll um öflun á fræðslugögnum. Hann kvað mánaðar-
lega haldna á Akranesi fræðsluþætti fyrir heilbrigðisstarfsmenn,
en oft væru erfiðleikar á öflun fræðslumynda. Á Norðurlöndum
væru til kvikmyndasöfn. Lagði hann til, að skrifstofa L.í. yrði
milliliður í útvegun mynda.
Ásmundur Brekkan sagði, að L.í. fengi upplýsingar um kvikmynd-
ir frá Þýzkalandi og Englandi. Taldi hann nauðsynlegt, að skrifstofa
L.í. væri þarna milliliður.
I sama streng tók formaður L.Í., Arinbjörn Kolbeinsso;n, og kvað
sjálfsagt að fjölrita kynningu á þessu og senda út til félaganna. Eins
þyrfti að kynna þetta í Læknablaðinu.
XII. Rcett um 50 ára afmæli L.í.
Samþykkt var að halda afmælið hátíðlegt 4. og 5. okt. næstkom-
andi og halda í samba'ndi við það heilbrigðisráðstefnu um lækninga-
miðstöðvar í þéttbýli og dreifbýli.