Læknablaðið - 01.12.1968, Síða 69
LÆKNABLAÐIÐ
279
lögunum kleift að veita stjórnarmönnum L.í. atkvæðalegt umboð á
aðalfundi.
Sú tillaga til lagabreytingar fellur því sjálfkrafa. Þótt fulltrúar
væru kjörnir til eins árs, breytir það engu um áhrif stjórnarkjörs L.í.
á val fulltrúa svæðafélaganna, þar sem stjórnarmenn L.í. verða sjálf-
krafa fulltrúar síns svæðafélags, hvort sem því líkar betur eða verr.
Sigmundur Magnússon.
Fylgiskjal 9
Tillaga Valgarðs Björnssonar um aðild að „Varúð á vegum“
Aðalfundur L.Í., haldinn í Bifröst 22.—23. 6. 1968, samþykkir
aðild L.í. í „Varúð á vegum“ og felur stjórn L.í. að tilnefna fulltrúa.
Valgarð Björnsson.
Fylgiskjal 10
Tillaga um áætlun verðandi Iæknamiðstöðvar
Aðalfundur L.Í., haldinn að Bifröst dagana 22. og 23. júní 1968,
samþykkir að fela stjórninni að skipa nefnd til að vinna að fullu úr
þeim gögnum, sem aflað var með könnun á starfsaðstöðu héraðslækna.
í samræmi við ályktun frá Læknafélagi Norðausturlands um
læknamiðstöðvar beinir fundurinn því til væntanlegrar nefndar, að
hún vinni að því í samráði við stjórn L.í. að semja tillögur með greinar-
gerð um það, hvar þegar megi hefjast handa að setja á stofn lækna-
miðstöðvar samkvæmt nánari reglum, sem væntanlegar eru frá heil-
brigðisyfirvöldum. Tillögur þessar verði sendar svæðafélögum til um-
sagnar, þannig að næsti aðalfundur L.í. geti tekið afstöðu til þeirra.
Helgi Þ. Valdimarsson,
Öm Bjarnason,
Gísli G. Auðunsson.
Fylgiskjal 11
Tillaga frá Læknafélagi Norðausturlands
Að marggefnu tilefni beinir aðalfundur L.í. 1968 þeirri ósk til
stjórnar L.Í., að hún veki athygli lækna á 9. grein codicis ethici L.í. og
reyni að hlutast til um, að læknar hagi starfi sínu samkvæmt henni.
Fundurinn telur, að rannsókn sjúklings hjá sérfræðingi eða dvöl á
sjúkrahúsi komi honum ekki að fullu gagni, nema farið sé eftir ákvæð-
um þessarar greinar, auk þess sem slík afgreiðsla sé lækni og/eða
sjúkrahúsi til vansæmdar.
Fylgiskj al 12
Alyktun frá Svæðafélagi Norðausturlands um læknamiðstöðvar, ásamt
breytingartillögum
Aðalfundur L.Í., haldinn að Bifröst 22. og 23. júni 1968, beinir
eftirfarandi ályktun til stjórnar félagsins.