Læknablaðið - 01.12.1968, Síða 71
LÆKNABLAÐIÐ
281
Fylgiskj al 13
Breytingartillaga við ályktun um læknamiðstöðvar frá Læknafélagi
Norðausturlands
Æskilegt er, að læknamiðstöðvar í dreifbýli séu reknar í nánum
tengslum við sjúkrahús, þannig að öll aðstaða, húsakynni, tæki og
starfslið nýtist sameiginlega og allar upplýsingar um sjúklinga
liggi fyrir á einum stað. Þessi sjúkrahiís þurfa aS vera heimilislækninga-
sjúkrahús, þar sem allir læknar stöövarinnar hafa jafna aöstööu.
Helgi Þ. Valdimarsson.
Fylgiskjal 1 4
TiIIaga Páls Gíslasonar um læknaráðstefnu um læknamiðstöðvar
Aðalfundur L.í. leggur til, að stjórn L.í. boði til ráðstefnu á hausti
komanda, þar sem eingöngu sé rætt um læknamiðstöðvar. Boðað sé til
slíkrar ráðstefnu í tengslum við afmælishátíð L.Í., ef henta þykir.
Páll Gíslason.
Fylgiskjal 1'5
Tillaga Arirfibjarnar Kolbeinssonar um stofnun Styrktarsjóðs lækna
Aðalfundur L.í. 22. og 23. júní 1968 samþykkir að stofna Styrktar-
sjóð lækna, eins og reglugerð hans mælir fyrir.
Arinbjörn Kolbeinsson.
Fylgiskjal 16
Tillaga til reglugerðarbreytingar fyrir „Styrktarsjóð lækna“ frá
Læknafélagi Norðvesturlands
8. grein verði þannig:
Styrkveitingar úr sjóðnum koma fyrst og fremst til greina í launa-
deilum, sem varða hag og heill allrar læknastéttarinnar og hún stendur
óskipt að eða þá stærri hópar innan hennar. Þó kemur einnig til greina
að veita slíkan stuðning einstökum læknum, sem eiga í launadeilum,
ef sjóðsstjórnin telur, að niðurstaðan geti varðað fleiri lækna.
Einnig er heimilt að veita styrk úr sjóðnum til einstakra lækna
eða læknahópa til náms og vísindaiðkana.
Þá er á valdi sjóðsstjórnar að ákveða, hvenær og hve mikinn fjár-
hagslegan stuðning skuli veita hverju sinni.
F. h. Læknafélags Norðvesturlands.
Valgarð Björnsson.
Fylgiskjal 17
Reglugerð fyrir Styrktarsjóð lækna með undanfarandi breytingu
1. grein
Nafn og lieimili
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður lækna. Heimili og varnarþing í
Reykjavík.