Læknablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 84
200
LÆKNABLAÐIÐ
Ársþing norrænna brjóstholsskurðlækna
Dagana 10.—14. júní 1968 var haldið í Reykjavík ársþing nor-
rænna brjóstholsskurðlækna. Erlendir þátttakendur voru 73. Voru
þeir frá öllum Norðurlöndunum og einn frá Hollandi. Forseti þingsins
var Hjalti Þórarinsson yfirlæknir.
Aðalefni þingsins voru: 1) Skurðaðgerðir við krabbameini í lung-
um, og flutti Hjalti Þórarinsson eitt af framsöguerindunum um það
efni. 2) Hjartaskurðaðgerðir á gömlum sjúklingum.
Samtals voru fluttir rúmlega 40 fyrirlestrar á þinginu, og urðu
fjörugar umræður um ýmsa þeirra.
Hinir erlendu þátttakendur komu með leiguflugvél frá Loftleiðum.
Þey^bjuggu allir á Hótel Loftleiðum, og þar var þingið háð. Luku allir
upp einum munni um ágæti þess fyrirkomulags og rómuðu mjög allan
aðbúnað og þjónustu á hótelinu.
Ársþing þessa félags hefur ekki verið haldið á íslandi áður, og
líklega var þetta fyrsta norræna læknaráðstefnan, sem hér er haldin.
Eiginkonur margra þátttakenda voru með í förinni, en hingað til
höfðu læknarnir farið einir til þings. Fyrstu dagana var sérstök dag-
skrá fyrir eiginkonurnar með stuttum ferðum um bæinn og nágrenni,
en tvo síðustu dagana var efnt til sameiginlegra ferðalaga.
Fyrri daginn var farið til Gullfoss, Geysis og Þingvalla. í upphafi
þeirrar ferðar var snæddur hádegisverður í boði Reykjalundar, en
Oddur ÓlafSson yfirlæknir rakti nokkuð sögu staðarins. Ekki voru
verðurguðirnir hagstæðir þénnan dag.
Seinni daginn var flogið til Akureyrar og ekið þaðan til Mývatns.
Kvöldverðarveizla var á Akureyri í boði Akureyrarbæjar, sjúkrahúss-
ins og Læknafélagsins.
Laust fyrir miðnætti var lagt af stað frá Akureyri og flogið mið-
nætursólarflug í boði F.f. norður fyrir heimskautsbaug. Þessi ferð
verður öllum ógleymanleg. Veður var með eindæmum gott, sólskin og
sunnanþeyr, og allt lék í lyndi.
Stjórnarnefnd ríkisspítalanna, Reykjavíkurborg, svo og þeir aðrir
aðilar, sem af rausn og höfðingsskap höfðu boð inni fyrir þátttakendur,
eiga sérstakar þakkir skildar.
Að morgni hins 15. júní flugu þessir ágætu gestir heim, þreyttir
nokkuð, en mjög ánægðir með íslandsdvölina.