Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson.
Meðritstjórar: Karl Strand og Þorkell Jóhannesson (L.Í.),
Arni Kristinsson og Saevar Halldórsson (L.R.)
57. ÁRG. APRÍL 1971 2. HEFTI
TVEGGJA LÆKNA MINNZT
GUÐMUNDUR KARL PÉTURSSON
YFIRLÆKNIR
fæddur 8. sept. 1901 — dáinn 11. maí 1970
Guðmundur Karl Pétursson fæddist að Hallgilsstöðum i
Hörgárdal. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Soffía Manasses-
dóttir, fædd 1868, dáin 1928, og Pélur Friðbjörn Jóhannsson
bóndi, fæddur 1868. Pétur lifði son sinn og fylgdi honum til
grafar, rúmlega 102 ára gamall.
Frá unglingsárum til hinzta dags var Guðmundur Karl glæsi-
legur á velli, snar í hreyfingum og sópaði að honum, hvar sem
hann fór.
Guðmundur Karl lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1925 og kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla
Islands vorið 1931. Við kandídatspróf hlaut hann fvrstu ágætis-
cinkunn, 218% stig, sem var hæstít einkunn, sem gefm hafði
verið þar. Að afloknu kandídatsprófi hélt hann til framhalds-
náms.
1 nóvember 1936 hlaut hann viðurkenningu sem sérfræðingur
í handlækningum, og þá um sama leyti gerðist hann yfirlæknir