Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 16
34
LÆKNAB LAÐIÐ
á sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann átti drýgstan þátt í því, að
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri var stofnað, og veitti þvi for-
stöðu til dauðadags.
Raunar lauk Guðmundur Karl aldrei framhaldsnámi. Ef litið
er á náms- og starfsferil hans í ritinu „Læknar á lslandi“, 2. útg.
1970, kemur i ljós, að hann hefur stöðugt verið á verði og reynt
að afla sér aukinnar þekkingar á sviði sinu, og einkum tileinkaði
liann sér lungnaskurðlækningar.
Um það leyti, er Guðmundur Karl settist að á Akureyri, var
herklaveikin á Islandi í hámarki. Sem úrslitakostur til að loka
cavernum var brjóstholsþrenging (thoracoplastic). Þetta var
mjög mikil aðgerð og áliættusöm, ekki sízt, ef miðað er við
þau hjálpargögn, sem þá voru til. Tækni við blóðgjafir og
svæfingar var þá í bernsku hér á landi. Nokkuð hafði verið gert
af þessum aðgerðum á Landakotsspítala og Landspítalanum, en
reyndin varð sú, að Guðmundi Karli var falið að gera allar þess-
ar aðgerðir. Starfssvið lians náði því ekki einungis til Akureyrar
og Norðurlands, heldur til landsins alls.
Guðmundur Karl var gæcldur óvenjumikilli lífsorku og starfs-
gleði, og oft leiftraði hann af athafnaþrá. Ekkert mannlegt var
honum óviðkomandi, en það, sem honum var lijartfólgnast auk
skyldustarfa, var náttúrudýrkun. Gróður og græðsla var honum
unun, og var hann ötull skógræktarmaður. Alest yndi hafði hann
þó af að fylgjast með fuglalífinu.
Guðmundur Karl var mjög félagslyndur, og í samkvæmum
var liann lirókur alls fagnaðar. Hann var mjög skennntilegur
x-æðumaður og talaði oft af miklum eldmóði. Hann starfaði i
mörgum félögum og hafði þá jafnan forustu. Vitnum við enn í
ritið „Læknar á Islandi“. Þar er þó margt vantalið. T. d. má
geta þess, að hann var lengur en nokkur annar starfsfélagi for-
maður í Læknafélagi Akureyrar. Á æskuárum var liann mikill
íþróttamaður, og alla ævi hafði hann ánægju af útivist, fjall-
göngum, veiðum og hvers konar sporti.
Guðmundur Karl var einnig mikill heimilismaður, og þar var
lireiðrið, sem honum þótti vænst um. Hann varð fyrir þeirri
gæfu að eignast afburðakonu í glæsileik og manndómi, Ingu Karls-
dóttur hjúkrunarkonu. Þau eignuðust fjórar dætur, og frá þeim
er mikill ættbogi í uppsiglingu.