Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
43
varna. Við þessar skoðanir hafa aldrei fundizt lifandi sullir.
Lungu, sem skoðuð hafa verið, eru úr fé af öllu landinu; þó
hefur lítið verið skoðað af lungum úr fé af Austfjörðum og liluta
af Vestfjörðum.
Höfundar, sem fjallað liafa um sullaveiki á Islandi (Eggert
Ölafsson, Bjarni Pálsson, 1772,] Magnús Stephensen 1808,10 Jón
Finsen 1858,3 H. Krabbe 1863,7 Snorri Jónsson 1872,16 Magnús
Einarsson 1901,8 telja allir, að lungna- og lifrarsullir í nautgrip-
um séu mjög tiðir.
Magnús Einarsson telur, að mergð þeirra í gömlum kúm hafi
verið svo gífurleg, að lungun hafi á yfirborðinu oft litið út eins
og „poki troðinn kartöflum“. Sollnar lifrar og lungu voru oft
afarstór og 10-15 sinnum þyngri en heilhrigð líffæri9.
Á árunum 1961-1970 var gerð leit í lungum og' lifrum full-
orðinna nautgripa, sem slátrað var í sláturhúsi Sláturfélags Suður-
lands í Reykjavík. Leit var alls gerð í 6900 nautgripum, aðallega
mjólkurkúm úr Borgarfirði, Gullbringu- og Kjósarsýslu, Árnes-
og Rangárvallasýslu. Liffærin voru skoðuð og þukluð, en aðeins
skorið í þau, ef ástæða þótti til. Vökvafylltar blöðrur, misstórar,
fundust í fáeinum lifrum, en engir sullir, hvorki í lifur né lung-
um.
1 einu rita sinna um sullaveiki minnist Harald Krabbe á, að
hann hafi fundið ígulsulli í svini í Eyjafirði.7 Magnús Einarsson
getur um lifrar- og lungnasulli í svínum.9 Þvi voru lungu og
lifur könnuð vandlega í öllum fullorðnum svínum, sem slátrað
var í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands í Reykjavík á árunum
1961-1970. Á þessu árabili voru alls drepin 1731 svín ársgömul
eða eldri, flest úr Reykjavík eða nágrenni. Þessi leit að sullum
í innyflum svína bar engan árangur.
1 lirossum hafa ígulsullir aldrei fundizt hér á landi, svo að
vitað sé.
Höfuðsótt, vanki eða mein (coenurosis), var algengur sjúk-
dómur i sauðfé hér á landi, einkum í gemlingum og veturgömlu,
en er einstöku sinnum líka getið í nautgripum.9 Sjúkdómurinn
var að jafnaði banvænn. Nú hefur höfuðsóttar ekki orðið vart
hér á landi áratugum saman, og í samræmi við það hefur vanka-
sullur hvergi fundizt síðustu áratugina.
Netjusullir eða lausasullir (cysticercosis) eru enn algengir
í sauðfé hér á landi. Netjusullir eru oftast meinlausir, nema fjöldi
þeirra i kviðarholi sé mjög mikill, cða þeir séu á stöðum, þar
sem þeir trufla eðlilega starfsemi líffæra. Vegna þess hve netju-