Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 78
72
LÆKNABLAÐIÐ
þegar verið útskrifuð aftur, þegar svar við blóðflokkun barst.
Er þetta sennilega aðalástæðan fyrir því, að 2/3 hlutar kvenn-
anna, sem Rhesus-neikvæðar voru, fengu ekki viðeigandi með-
ferð. Nú hafa verið gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir
slík mistök. Lögð verður sérstök áherzla á, að allar konur, sem
láta fóstri, verði blóðflokkaðar þegar við komu á sjúkrahúsin.
Þess skal getið sérslaklega á blóðflokkunarbeiðni, að um fóstur-
lát sé að i’æða, og mun Blóðbankinn þá senda svar um hæl sím-
leiðis til vagtliafandi læknis á lilutaðeigandi sjúkrahúsi.
Vera má, að ckki hafi verið lögð næg áherzla á eftirlit með
fósturlátum, þegar rætt var um Rhesus-varnir í ferðum um
landið í upphafi, en fósturlát geta verið jafnríkur hvati til mót-
efnamyndunar lijá Rliesus-neikvæðum konum og fæðing, eins
og áður er sagt, þ. e. a. s. ef konan gengur með Rliesus-jákvætt
fóstur. Við væntum þess, að þetta atriði verði tekið fastari tökum
framvegis.
NIÐURLAG
Frá því að fyrstu sendingar af Rb. immune globulini komu
frá Connaught Medical Research Laboratories, Toronto, Kanada,
i lok ársins 1969, hefur verið mjög vel um þann þátt séð. Fyrir-
tækið sendir lyfið til skrifstofu Loftleiða i Net\v York, sem sér
um, að það berist á sem skemmstum tíma til landsins, þar sem
Lyfjaverzlun ríkisins sér um dreifingu þess. I Lyfjaverzluninni
er nákvæm skrá yfir þau sjúkrahús og lækna, sem Rhesus-varnir
annast, og hefur Lyfjaverzlunin afgreitt allt bæði fljótt og vel.
Ástæða er að geta þess, að geymsluþol efnisins er allt að einu
ári í kæliskáp. Teljum við því rétt að benda læknum á, að sjálf-
sagt er að eiga alltaf a. m. k. einn skammt af efninu á staðnum,
því að lítil liætta er i flestum tilfellum á því, að efnið evðilegg-
ist, áður en þörf verður fvrir það.