Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 76
70
LÆKNABLAÐIÐ
urn koniun fara fram annars staðar en í Blóðbankanum.
Árið 1970 voru send blóðsýni til Blóðbankans i sambandi við
Rhesus-varnir svo sem hér segir:
Flokkaðar ABO Rhesus-jákvæðar voru 1382 konur,
— ABO Rhesus-neikvæðar voru 272 konur.
Hér er að sjálfsögðu um nýjar blóðflokkanir að ræða, þ. e. hjá
konurn, sem hafa ekki verið flokkaðar áður eða Eldon-flokkaðar
áður. Gefur þetta noklcra hugmynd um blóðflokkanir hjá þung-
uðum konum í landinu, því að aðrar konur, sem fæddu þctta
ár, hafa verið flokkaðar í Blóðbankamun áður; en telja má, að
engin kona fæði nú á Islandi, án þess að hún sé blóðflokkuð á
meðgöngutíma.
Mótefnarannsókn (screentest) var gerð 812 sinnum, en mót-
cfnamælingar (titermælingar) voru gerðar í 83 tilfellum. Mót-
efnamælingar (titermælingar) eru aðeins gerðar Jijá þeim kon-
um, sem hafa myndað mótefni. Er það utan takmarka þessarar
greinar að ræða þær nánar, cn verður gert á öðrum vettvangi
síðar.
Nýfædd börn voru flokkuð í Blóðbankanum svo sem liér
segir: Nákvæmlega 400 börn voru l'lokkuð strax eftir l'æðingu í
Blóðbankanum og reyndust 255 vera Rhcsus-jákvæð, en 145
Rhesus-neikvæð. Þetta voru að sjálfsögðu allt börn Rhesus-
neikvæðra kvenna.
Coombs-próf voru gerð i 400 tilfellum og reyndust 28 þeirra
jákvæð, en 378 neikvæð. Það skal tekið fram, að Coombs-próf
hafa verið gerð víðar en í Blóðbankanum, svo að hér cr ekki um
endanlega töln barna að ræða, sem fæddust með erythroblastosis
foetalis.
Starfsfólk Blóðbankans liefur brugðizt mjög vel við þessu
aukna álagi á starfsemi hans. Blóðsýni berast til bankans viðs
vegar að af landinu á öllum tímum dags. Rannsóknir hafa verið
gérðar samstundis, og' hvenær, sem ástæða var til, hefur svar
verið sent um liæl og oft símleiðis til lilutaðeigandi sjúkrahúsa
og lækna.
Sérstök spjaldskrá er höfð í Blóðbankanum yfir rannsóknir
hjá öllum þunguðum konum, bæði lúóðflokkun og önnur próf,
sem hjá þeim eru gerð. Til ])ess að fá heildarsýn yfir Rliesus-
varnir í landinu er nauðsynlegt, að blóðflokkanir og mótefna-
mælingar vcrði framkvæmdar áfram í Blóðbankanum. Hins
vegar cr ekkert því til fyrirstöðu, að gcra megi Coombs-próf og
Rhesus-flokkanir á fylgjublóði nýfæddra barna á öðrum stöðum