Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
49
YFIRLIT
Greint er frá athugun, sem gerð var til þess að leita uppi
ígulsulli í líffærum 6900 fullorðinna nantgripa, 1730 svína og
tugþúsunda sauðfjár (lungnaskoðun). Engir igulsullir fundust í
nautgripum eða svínum. 1 sauðfé fundust ígulsullir í 14 kindum
alls á árunum frá 1953-1970. Allar voru þær kindur úr Suður-
Múlasýslu.
Augljóst er, að ígulsullir eru nú orðnir mjög fátíðir í sauðfé
á íslandi.
Lcit að ígulbandormum (Echinococcus granulosus) í 200
hundum, sem krufðir voru, bar ekki árangur.
Talið er, að sá góði árangur, scm náðst hefur í baráttunni
gegn sullaveiki, megi þakka alþýðufræðslu um eðli veikinnar og
hverrar varúðar sé þörf í umgengni við lmnda, opinberum fyrir-
mælum um eyðingu sulla, fækkun hunda, m. a. vegna faraldra
af hundafári og' sölu lifandi kinda úr landi í stórurn stíl.
II. TAFLA
Talning bandorma í hundum á íslandi.
Fjöldi hunda T. marginata T. coenurus T. echino- coccus Diphylidium caninum
Harald Krabbe 1863 100 75 18 28 57
Páll A. Pálsson o. fl. 1950-1960 200 11 0 0 2
III. TAFLA
Yfirlit yfir sullasmit fundið við 2272 krufningar á R.H. árin
1932-1950 (eftir Níels Dungal 1957).
Fæðingarár hins látna Hundraðstaia með ígulsulli
1841-1860 15
1861-1870 22
1871-1880 15
1881-1890 3
1891-1900 0
1901-1910 0
1911-1920 1
1921-1930 0
1931-1940 0
1941-1950 0