Læknablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 68
68
LÆKNABLAÐIÐ
lækni upplýsingar þess eðlis frá Kanada, að unnt væri að afla
nægilegs magns af Rh. immune globulini þar til þess að veita’
ölluin Rhesus-neikvæðum konum hér á landi meðferð, þeim sem
liennar þyrftu með. Þessi sérstaða jók áhugann á því að skipu-
leg'gja Rhesus-varnir á Islandi í þeim mæli, sem öðrum þjóðum
hafði ekki tekizt til þessa vegna fjölmennis.
Því varð að ráði, að farnar voru ferðir um laiidið til þess
að kynna læknum og ljósmæðrum væntanlegar Rhesus-varnir
og skipuleggja framkvæmd þeirra í cinstökum héruðum. Miðstöð
Rhesus-varnanna var ákveðin í Blóðbankanum og raðinn sér-
stakur meinatæknir lil starfa þar haustið 1969, en þá hafði öllum
ferðum og fundarhöldum vegna Rhesus-varna verið lokið. Undir-
búningur tók því um það bil eitt ár, og hófust Rhesus-varnir á
landinu hinn 17. desember 1969.
Þar sem nú er rúmt ár liðið, þótti rétt að líta yfir farinn
veg og athuga, livernig tekizt hafði til fyrsta ár Rhesus-varnanna
í landinu.
RHESUS-VARNIR ÁRIÐ 1970
Athuganir, sem gerðar voru, áður en Rhesus-varnirnar hlupu
af stokkunum, bentu til þess, að hér á landi myndu um jiað bil
700 Rhesus-neikvæðar konur fæða á ári hverju, en af þeim þyrftu
450 immune globulin gjöf, ef næðist til allra. Gert var ráð fyrir,
að fæðingar í landinu væru alls u. þ. 1). 4500 og af þeim væru
15% kvennanna Rhesus-neikvæðar. Ástæðan til þess, að allar
þessar konur þurfa ekki immune globulin, er sú, að margar fæða
Rhesus-neikvæð börn af ýmsum ástæðum og þurfa þá að sjálf-
sögðu ekki neinnar meðferðar við. Þar sem immune globulin
var vandfengið og dýrt að auki, var lögð áherzla á, að böm
allra Rliesus-neikvæðra kvenna væru flokkuð þegar eftir fæð-
ingu og gert Coombs-próf hjá þeim. Þetta var gert til þess, að
ekki væri neinni konu gefið immune glöbulin, sem fæðir Rhesus-
neilcvætt barn. Þess vegna varð að skipuleggja Rhesus-varnirnar
á þann hátt, að Rhesus-neikvæðar konur fæddu á þeim stöðum,
sem gætu gert þessi próf eða hefðu aðstöðu til að senda blóðsýni
þegar eftir fæðingu til Blóðbankans til nefndra rannsókna.
Reynslan af árinu 1970 hefur sýnt, að alls eru 18 staðir á
landinu, sem geta fullnægt þessum skilyrðum, sem hér eru nefnd
að ofan. Þessara staða er getið í 1. töflu.