Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1971, Page 78

Læknablaðið - 01.04.1971, Page 78
72 LÆKNABLAÐIÐ þegar verið útskrifuð aftur, þegar svar við blóðflokkun barst. Er þetta sennilega aðalástæðan fyrir því, að 2/3 hlutar kvenn- anna, sem Rhesus-neikvæðar voru, fengu ekki viðeigandi með- ferð. Nú hafa verið gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir slík mistök. Lögð verður sérstök áherzla á, að allar konur, sem láta fóstri, verði blóðflokkaðar þegar við komu á sjúkrahúsin. Þess skal getið sérslaklega á blóðflokkunarbeiðni, að um fóstur- lát sé að i’æða, og mun Blóðbankinn þá senda svar um hæl sím- leiðis til vagtliafandi læknis á lilutaðeigandi sjúkrahúsi. Vera má, að ckki hafi verið lögð næg áherzla á eftirlit með fósturlátum, þegar rætt var um Rhesus-varnir í ferðum um landið í upphafi, en fósturlát geta verið jafnríkur hvati til mót- efnamyndunar lijá Rliesus-neikvæðum konum og fæðing, eins og áður er sagt, þ. e. a. s. ef konan gengur með Rliesus-jákvætt fóstur. Við væntum þess, að þetta atriði verði tekið fastari tökum framvegis. NIÐURLAG Frá því að fyrstu sendingar af Rb. immune globulini komu frá Connaught Medical Research Laboratories, Toronto, Kanada, i lok ársins 1969, hefur verið mjög vel um þann þátt séð. Fyrir- tækið sendir lyfið til skrifstofu Loftleiða i Net\v York, sem sér um, að það berist á sem skemmstum tíma til landsins, þar sem Lyfjaverzlun ríkisins sér um dreifingu þess. I Lyfjaverzluninni er nákvæm skrá yfir þau sjúkrahús og lækna, sem Rhesus-varnir annast, og hefur Lyfjaverzlunin afgreitt allt bæði fljótt og vel. Ástæða er að geta þess, að geymsluþol efnisins er allt að einu ári í kæliskáp. Teljum við því rétt að benda læknum á, að sjálf- sagt er að eiga alltaf a. m. k. einn skammt af efninu á staðnum, því að lítil liætta er i flestum tilfellum á því, að efnið evðilegg- ist, áður en þörf verður fvrir það.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.