Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
159
bótar og sýni 14/7, 15/7 og 16/7 voru neikvæð. Enn fremur sým
tekin 23/7 og 24/7,
Widalspróf: 28/5 1969: — 9/6. 16/6.
Aggl. typhosum O < 1/10. < 1/10.
Do. Do. H < 1/10. < 1/10.
Do. paratyph. BO 1/80. 1/160.
SJÚKLINGUR NR. 4. (FSA lyfl.deild, sjúkraskrá 357/1969.). I.M.-
dóttir, f. 26/3 1912. Lá á FSA 4/6 — 9/7 1969.
Sjúkl. hafði legið veik heima í viku, áður en hún kom á FSA.
Hún veiktist skyndilega að kvöldlagi, fékk köldu, beinverki, hita
hækkun, ógleði, en ekki uppköst. Strax um kvöldið fékk hún mikinn
niðurgang og voru hægðir vatnsþunnar, í fyrstu saurlitar, síðan blóð-
litar. Niðurgangur hélzt allan tímann heima óbreyttur, hiti fór hæst
í 40°, en var oftast um 39°. Við komu á FSA var hann 39.7°.
Ógleði hvarf fljótlega eftir komu, en niðurgangur hélzt til 14/6,
þó smáminnkandi. Síðan engin óþægindi frá meltingarvegum. Hiti
var þrálátur og toppóttur, og var sjúklingur fyrst hitalaus 18/6. Sýni
tekið 5/6 var jákvætt og síðan til 25/6 að einu sýni undanskyldu.
Frá 25/6 voru öll sýni neikvæð.
Widalspróf: 5/6. 26/6.
Aggl. typhosum O < 1/10. < 1/10.
Do. Do. H < 1/10. < 1/10.
Do. paratyph. BO 1/80. 1/160.
Meðferð á FSA var auk almennrar hjúkrunar fyrst og fremst
iólgin í að koma á og viðhalda jafnvægi í salta- og vökva-búskap.
Antibiotica fengu sjúkl. engin önnur en þegar hafa verið talin.
Súbjektíf sjúkdómseinkenni frá STM voru löngu horfin hjá þeim
öllum við burtför af sjúkrahúsinu.
SJÚKLINGUR NR. 5. J.H.-dóttir, 19 ára hjúkrunarnemi á lyfl.deild
FSA. Veiktist 4/6 1969 og var veik til 8/6 með hitaslæðing og mikinn
niðurgang. Sýni tekin 12/6 og 13/6 voru jákvæð. Þegar svarið við
þeim barst var J. farin í sumarfrí til Blönduóss. Talað var við hér-
aðslækni þar, honum sagt frá gangi málsins og hann beðinn að taka
J. til eftirlits. Samkv. símtali við hann 9/8 var sýni frá J. 25/6 já-
kvætt, en sýni 1/7 og 4/7 voru neikvæð.
Widalspróf 25/6 1969: Aggl. paratyphosum BO 1/80.
Sjúklingur nr. 2. var stofufélagi nr. 1 á FSA og veiktist rúmri
viku eftir að jákvætt sýni kom fyrst frá nr. 1. Sjúkl. nr. 5. vann á
lyfl.deild FSA. Þar höfðu nr. 1. legið í 24 daga, nr. 3. í 10 daga og
nr. 2 sannanlega haft STM í 6 daga, er nr. 5. veiktist. Við athugun
á smitunarlíkum og möguleikum þótti mega ganga út frá að nr. 2. og
5. hefðu bæði smitazt innan FSA og ekki væri ástæða til að leita
annarra smitunarleiða til þeirra. Öðru máli gilti um nr. 1., 3. og 4 .
og jafnóðum og vitað var um þá sjúklinga, var grennslazt um smitun
arlíkur frá umhverfi þeirra og þá einkum um mataræði, en STM
berst oftast með neyzluvörum, mat eða drykk.