Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 46
176 LÆKNAB LAÐIÐ ins um meðferð einstakra sjúklinga. Þó að ábendingar, uppástungur cg umræður frá öðrum aðilum, sem þátt taka í meðferðinni, eigi alltaf að vera velkomnar, mega ekki aðrir en læknar taka ákvarðanir, sam- kvæmt lögum. Sumir læknar taka slíkar ábendingar og uppástungur óstinnt upp, oftast af misskilningi á eðli ákvörðunartöku, sem þeir telja ekki nógu sjálfstæða, ef hún byggir á annarra ráðum. Aætlanagerð og faraldsfræði Mönnum er hins vegar ekki alltaf eins ljóst, hversu sjálfsagt og nauðsynlegt frumkvæði læknisins er, þegar um er að ræða hóp sjúkl- inga eða einstaklinga, sem ekki eru orðnir veikir enn. Það er þó skylda allra lækna að gera áætlanir og búast við hinu ókomna. Til þess að gera slíkar áætlanir þarf að þekkja þarfir samfélagsins og fylgjast með þróun þess og framförum læknisfræðinnar. Hvorttveggja ber læknum að gera, hverjum á sínu sérsviði, og helzt með nokkru tilliti til læknisfræðinnar almennt, þó að það sé fyrst og fremst verkefni sérhæfðra lækna í félagslækningum og læknisfræðilegri stjórnun. Þarfir samfélagsins þarf að kanna með stöðugum rannsóknum á far- aldursfræði, þ. e. rannsóknum á tíðni, dreifingu og gangi sjúkdóma í samfélaginu í heild. Slíkar rannsóknir þjóna bæði áætlunargerð vegna stjórnunar og vísindalegum tilgangi í leit að orsökum sjúkdómanna. Við áætlunargerð vegna heilbrigðisstofnana verður að byggja á slíkum rannsóknum, sem taka til alls þjóðfélagsins. Ekki nægir að byggja áætlunargerðina á biðlistum sjúkrahúsanna né heldur á innlagningum á þau. Biðlistarnir eru alltof tilviljanakenndir og háðir ýmsum öðr- um atriðum en meðferðarþörfinni einni saman, s. s. vitneskju um lík- ur til að komast að, árangri af meðferð, sem beitt er, og jafnvel með- vitaðri eða ómeðvitaðri óskhyggju sjúkrahúslæknanna, sem stundum líta á biðlista sem stöðutákn eða vilja nota þá sem pressu. Ef vitað er, að sjúkrahús eru yfirfull og líkur til að fá rúm eru sáralitlar, er ekki leitað eftir rúmi fyrr en löngu eftir að fokið er í öll skjól, þannig að sjúkrahúsmeðferð, sem hefði getað tekið stuttan tíma, verður oft- ast tímafrekari en skyldi. Skapast þá vítahringur, sem nauðsyn er að brjóta. Þetta getur og orðið til þess, að menn telja árangurinn af með- ferðinni, sem beitt er, svo vafasaman, að ekki sé leitað eftir rúmum af þeim sökum. Svipað gildir, ef t. d. heimilislæknar þekkia ekki meðferðarmöguleikana, þá er ekki leitað eftir rúmum, sem veldur því, að sjúkrahúslæknir, sem ekki þekkir faraldursfræði sjúkdómanna i þjóðfélagi sínu, getur verið haldinn þeim misskilningi, að ekki sé þörf fyrir einhverja ákveðna meðferð. Það, sem sagt hefur verið um sjúkrahús, getur einnig átt við aðrar heilbrigðisstofnanir og jafnvel einstaka lækna að breyttu breytanda. Innan einstakra heilbrigðisstofnana verða læknar að hafa frum- kvæði um hvers konar áætlanagerð, sem lýtur að hagkvæmni í störf- um og rekstri, bættri þjónustu, rannsóknum og kennslu. Við slíka áætlanagerð verður oft að velja milli ýmissa kosta og sætta mismun- andi sjónarmið. Reynir þá mjög á hæfni læknisins til hópvinnu, annað- hvort meðal jafningja eða sem leiðtoga. Ef læknar hafa ekki nægjan-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.