Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 18
160
LÆKNABLAÐIÐ
UMHVERFI
Sjúklingar nr. 1., 3. og 4. voru allir búsettir á Akureyri. Allir
höíðu þeir dvalizt í bænum óslitið svo mánuðum skipti, áður en
þeir veiktust, og hlutu því að hafa smitazt hér. Þeir voru búsettir
sinn í hvorum bæjarhluta. Enginn kunningsskapur var með þeim eða
samgangur milli heimila.
Heimilishald og heimilisfólk hjá nr. 1. var dálítið á reiki, þann-
ig að þar dvöldu af og til synir sambýliskonu hans, sem ekki voru
þar heimilisfastir. Stundum kom fyrir að þeir legðu á borð með sér.
Auk vinnu sinnar hafði nr. 1. nokkurn búskap, en alifugla kvaðst
hann ekki hafa og aldrei hafa haft. Hann og sambýliskona hans
sögðust eingöngu verzla í kjörbúðum KEA. Ekki veiktust aðrir
heimamenn nr. 1. en hann. Sýni frá heimilisfólki hans reyndust
öll neikvæð.
Nr. 1. vann við slátrun í sláturhúsi KEA. Hann sagðist hafa
slátrað kálfi, sem var mjög illa haldinn af niðurgangi, 2—3 dögum
áður en hann veiktist sjálfur, og minnugur tilfella af STM, sem
komu upp í Eyjafirði sumarið 1968 í mönnum og nautgripum, hafði
hann tröllatrú á, að hann hefði smitazt af kálfi þessum. Vegna þessa
var haft samband við bónda þann, sem átti kálfinn, og sýni fengin
frá bóndanum, öllu heimafólki hans og öllum þeim mönnum, sem
unnu að slátrun með nr. 1. þennan dag, alls 11 manns. Þau sýni
reyndust öll neikvæð. Sýni frá kálfinum fengust engin.
Nr. 3. og 4. voru báðar húsmæður, báðar sjúklingar af öðrum
ástæðum. Önnur þeirra er lömuð eftir mænusótt, hin hefur vefrænan
hjartasjúkdóm. Hvorug þeirra vann utan heimilis, hvorug þeirra
hafði farið út af heimili sínu í margar vikur, áður en þær veiktust,
hvað þá neytt nokkurs utan heimilis á þeim tíma, þegar smitun hefð.i
átt að eiga sér stað. Umhverfi þeirra þann tíma, var því eingöngu
heimili þeirra.
Á heimili nr. 3. var aðeins hún og maður hennar, og sá hann
matarinnkaup. Hann kenndi sér einskis mein þá daga, sem kona hans
var veik. Nr. 3. var mjög lystarlítil og neyzlugrönn, lifði mest á
léttmeti, súpum, grautum, ávöxtum. Eina frávik, sem vitað var um
frá þeirri reglu, var, að bóndi hennar sagðist, 2 dögum áður en
hún veiktist, hafa keypt niðursneitt hangikjöt (álegg) hjá kjöt-
vinnslu X, en hann verkar kjöt og selur. Hafi nr. .3. borðað nokkuð
af því. Afganginum af kjötinu var húsbóndinn búinn að henda, er
við hann var talað. Sýni frá honum voru neikvæð.
Heimafólk nr. 4. var auk hennar sambýlismaður hennar og
sonur þeirra. Hvorugur þeirra kenndi sér meins, meðan nr. 4. var
veik. Þeir feðgar sáu um matarinnkaup og sögðust yfirleitt verzla
í útibúi KEA á Oddeyri. Eina breyting á mataræði væri, að þau
hefðu nýlega keypt egg, og væri það ekki vani þeirra. Á heimil-
inu voru til hænuegg, merkt 2 framleiðendum. Voru þau send í
ræktun, en hún reyndist neikvæð. Þegar nánar var grennslazt eftir
mataræði og afbrigðum frá venju um þáð, sagði húsbóndinn, að
hann hefði, 2 eða 3 dögum áður en nr. 4. veiktist, keypt lítið eitt