Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 44
174
LÆKNABLAÐIÐ
SPAKLEGA MÆLT
Sá, sem hafnar reynslu hinna eldri og telur nýtízku aðferðir
hinar einu réttu, bæði blekkir sjálfan sig og aðra.
Hippokrates 460—377 f. Kr.
Hlutverk læknisins er það eitt að lækna. Takist honum það.
skiptir engu, hvað aðferðum hann hefur beitt.
Hippokrates 460—377 f. Kr.
Læknirinn verður framar öllu að þekkja takmörk sín. Því aðeins
er hann góður læknir, að hann þekki mun hins mögulega og ómögu-
lega.
Herophitos 3. öld f. Kr.
Je le pansey et Dieu le quarist.
Ég bjó um sár hans, og Guð læknaði hann.
Ambroise Paré 1517—1590.
Læknar skyldu ekki segja: „Þennan sjúkling læknaði ég,“'
heldur: „Þennan sjúkling missti ég ekki.“
Lichternberg 1742—1799.
Læknum og kennurum verður ekki of vel launað.
Gamalt þýzkt máltæki.
Ég tel það eina mikilvægustu reglu læknisins að missa aldrei
von né hugrekki. Sá, sem vonlaus er, hugsar ekki lengur. Af því
leiðir óhjákvæmilega sinnuleysi og sjúklingurinn hlýtur að deyja,
því að hjálpari hans er þegar dauður,
Hiifeland 1767—1836.
Hver skyldi vilja verða læknir, ef hann gæti séð fyrir alla þá
eymd og afskræmingu, sem bíður hans?
Goethe 1749—1832.
Sá læknir, sem örvæntir, er lélegur læknir.
Seneca 3—65 e. Kr.
X