Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
165
Þórir Helgason
NOKKUR ATRIÐI UM SYKURSÝKI
INNGANGUR
Skilgreining
Sykursýki er ólæknandi sjúkdómur, sem einkennist af „skorti“ á
insúlíni. Afleiðingin verður truflun á efnaskiptum kolvetna, fitu og
eggjahvítu og skemmdir á æðum, smáum og stórum.
Orsök
Sjúkdómsorsökin er arfgeng og meðfædd, en um eðli og hátt erfðar-
innar ríkir óvissa. Ýmsar ytri aðstæður, t. d. offita og mikil barneign,
kynda undir aukin áhrif ofangreindra erfðaþátta, einkum hjá hinum
eldri, og geta þannig leyst sjúkdóminn úr læðingi.
Flokkun
Sykursýki er sögð kemísk eða leynd, þegar insúlínskortur er ekki svo
mikill, að fram komi bein einkenni, en klínísk eða ljós, þegar sjúkling-
ar líða af insúlínskorti samfara auknum sykri í blóði.
Aldur og kyn
Sjúkdómsins verður vart hjá fólki á öllum aldri og hjá báðum kynj-
um. Algengast er, að sjúkdómurinn finnist á aldursskeiðinu 45-65 ára.
Um 5% sykursjúkra eru yngri en 15 ára, en hjá um 35% sjúklinga
finnst sjúkdómurinn fyrir fertugt og um 50% fyrir fimmtugt.1 2 3
Tíðni
Álitið er, að erfðaeiginleiki sjúkdómsins finnist hjá 20-30% þjóðfélags-
þegna.2 4 22 Sjúkdómsins gætir þó ekki hjá öllum þeim, sem erfðina
geyma, vegna þess hve erfðaeiginleikinn er mjög mismunandi sterk-
ur. Víðtækar faraldsfræðilegar (epidemiologiskar) rannsóknir seinni
ára gefa til kynna, að tíðni kemískrar eða leyndrar sykursýki sé
5-10% þjóðfélagsþegna, en klínískrar eða ljósrar sykursýki um 2%
(Svíþjóð 2,05%, Danmörk rösk 2%, Noregur 1,9%, England 2-3%,
A.-Þýzkaland 2-3%, V.-Þýzkaland 1,8%, Bandaríkin 2,3%, Ungverja-
land 2,13%).5 6 7 Athyglisvert er, að fyrrgreindar rannsóknir spá mik-
illi fjölgun sykursjúkra á komandi árum, t. d. er gert ráð fyrir, að
árleg aukning klínískrar sykursýki í Svíþjóð verði 1,25%.7 Ýmsar
ástæður liggja til grundvallar. Ævi sykursjúkra lengist stöðugt. Sykur-
sjúkum konum auðnast að eignast fleiri börn en áður og því íjölgar
þeim einstaklingum, sem erfðaeiginleikann geyma. Offita verður æ
algengari. Árvekni lækna um greiningu sjúkdómsins fer vaxandi.
Einkenni
Einkenni sjúkdómsins eru tvíþætt: bein og/eða óbein. Bein kallast